Lífið

Þegar Áslaug Arna hitti Jude Law

Stefán Árni Pálsson skrifar
Áslaug Arna hefur ekki séð margar af þekktustu kvikmyndir sögunnar. 
Áslaug Arna hefur ekki séð margar af þekktustu kvikmyndir sögunnar. 

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra var gestur hjá Ásgeiri Kolbeinssyni í þættinum Sjáðu á Stöð 2 á laugardagskvöldið.

Þar fór hún yfir sínar uppáhalds kvikmyndir en dómsmálaráðherra er allt annað en vel að sér í kvikmyndum og hefur ekki séð margar af þekktustu myndum allra tíma.

Teiknimyndir er sá flokkur sem hún þekkir hvað best og er Monster INC hennar uppáhalds teiknimynd.

Áslaug sagði einnig sögu af því þegar hún hitti breska leikarann Jude Law. Hann hefði verið mjög viðkunnulegur og kurteis að öllu leyti. 

Hér að neðan má sjá þáttinn í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.