Lífið

Vorkennir Daða Frey sérstaklega

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Daði Freyr og Gagnamagnið í myndbandinu við lagið Think About Things.
Daði Freyr og Gagnamagnið í myndbandinu við lagið Think About Things.

Belgíski Eurovision-sérfræðingurinn Peter Van de Veire segist vorkenna Daða Frey Péturssyni, sem hefði líklega stigið á svið fyrir Íslands hönd á Eurovision-sviðinu í Rotterdam í kvöld ef keppninni hefði ekki verið aflýst.

Van de Veire segir í samtali við AP-fréttastofuna að lag Daða Freys, hið „skrautlega og dansvæna“ Think About Things, hefði verið afar sigurstranglegt.

„Ísland var með topplag og það hefði vel getað unnið, hefði keppnin verið haldin. Þetta hefði getað orðið alþjóðlegur smellur. Þannig verður það ekki núna,“ segir Van de Veire.

Þess er þó sérstaklega getið í viðtali AP að Daði Freyr hafi notið góðs af velgengni lagsins á samfélagsmiðlum. „Ég bjóst aldrei við því að hún yrði jafn mikil og raun ber vitni. Það eru núna um 44 þúsund myndbönd á Tik Tok þar sem lagið er notað,“ segir Daði Freyr í samtali við fréttastofuna.

Líkt og áður segir hefði Eurovision verið haldið í kvöld, og ef marka má veðbanka áður en keppnin var blásin af hefðu Daði og Gagnamagnið flogið inn á úrslitakvöldið úr undankeppni síðasta fimmtudag. Og jafnvel borið sigur úr býtum.

Þrátt fyrir að Daði Freyr fái aldrei að flytja Think About Things á Eurovision-sviðinu hefur lagið slegið í gegn nú í aðdraganda keppninnar, einkum á Tik Tok líkt og áður er getið. Þá er lagið efst á Eurovision-vinsældarlista Spotify en því hefur verið streymt oftast allra framlaga keppninnar í ár, að því er fram kemur á vef Sky News í dag.

Hér að neðan má sjá myndband nokkurra vina sem dönsuðu við lag Daða Freys í kórónuveiruútgöngubanni síðustu vikna. Myndbandið sló í gegn á Tik Tok og státar af milljónum áhorfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.