Viðskipti erlent

Erfitt að koma hjólum atvinnulífsins aftur af stað

Samúel Karl Ólason skrifar
KOna með grímu og hanska opnar fataverslu í Vín.
KOna með grímu og hanska opnar fataverslu í Vín. AP/Ronald Zak

Yfirvöld ríkja víða um heim leita nú leiða til að endurvekja atvinnulíf þeirra ríkja. Reynslan í Kína og í Evrópu sýnir þó að það verði ekki auðvelt þar sem íbúar fara minna út og eyða mun minna af peningum. Viðskiptavinir forðast verslanir sem eru opnar og félagsforðun hefur haldið velli.

Þetta kemur fram í umfjöllun AP fréttaveitunnar þar sem einnig segir að fólk óttist að útbreiðsla nýju kórónuveirunnar taki annan kipp sé slakað of mikið á takmörkunum sem koma eigi í veg fyrir nýja faraldra.

Í borgum í Kína hafa embættismenn farið út að borða og reynt að laða fólk út þannig, með misgóðum árangri. Í Bandaríkjunum er verið að gefa almenningi pening til að borga reikninga og halda hjólum atvinnulífsins á ferðinni.

Verslanir hafa verið opnaðar í Róm en AP fréttaveitan segir götur borgarinnar tómar. Svipaða sögu er að segja frá Vín þar sem fáir eru á ferli. Marie Froehlich, sem rekur fataverslun í borginni, sagði starfsfólk sitt ánægt með að vera mætt aftur til vinnu. Hins vegar treystu þau verulega á ferðaþjónustu og ferðamenn og þess vegna muni það taka minnst einhverja mánuði að ná öllu í fyrra horf.

Í Bandaríkjunum hefur framleiðsla dregist verulega saman og í raun hefur álíka samdráttur ekki átt sér stað frá endalokum seinni heimsstyrjaldarinnar. Í mars drógust tekjur verslana verulega saman eða um 8,7 prósent og búist er að það verði mun verra í þessum mánuði.

Donald Trump, forseti, segist vera að undirbúa viðmið varðandi það að draga úr félagsforðun og hefur hann reynt að fá forsvarsmenn viðskiptalífsins með sér í lið. Þeir segja það þó erfitt án mikillar aukningar í skimun fyrir kórónuveirunni og án hlífðarbúnaðar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×