Skoðun

Metantillaga Flokks fólksins sem lögð var fram í borgarstjórn í júní skilar árangri

Kolbrún Baldursdóttir skrifar

Strætó bs. skoðar nú fýsileika þess að metanvæða hluta af bílaflota fyrirtækisins. Markmiðið er að nýta mikla umframframleiðslu Sorpu bs. á gastegundinni. Nýlega festi Strætó kaup á tveimur metanvögnum. Annar þeirra var tekinn í notkun í byrjun september og hefur reynslan af akstrinum verið góð. Til skoðunar er að fjölga metanvögnum upp í allt að tuttugu. Þetta er fagnaðarefni. Það má nefna í þessu sambandi að þetta er einmitt tillaga Flokks fólksins sem lögð var fram í borgarstjórn 18. júní 2019 og var vísað til stjórnar Strætó bs. Hún hljóðar þannig að borgarstjórn samþykki að álykta um að Sorpa hætti brennslu á metani og að það verði þess í stað nýtt sem eldsneyti t.d. með því að fjölga metanvögnum Strætó bs.

Ég vil trúa því að þessi tillaga hafi haft þessi jákvæðu áhrif og að hér sé dæmi um að mál okkar í Flokki fólksins séu að skila einhverju góðu til borgarbúa. Ég hef fylgt eftir þessari tillögu með fjölmörgum bókunum í málum sem tengjast umræðunni um orkuskipti. Ég hef jafnframt notað öll tækifæri sem hafa gefist í borgarstjórn til að minnast á metan sem framleitt er mikið af og sem væri hægt að nýta á strætisvagna í stað þess að brenna það á báli þar sem ekki er forsvaranlegt að hleypa því út í andrúmsloftið.

Fyrr á árinu höfðu þær upplýsingar borist frá Strætó bs. að óskað hafði verið eftir tilboðum í vetnisvagna. Það var sérkennilegt því framleiðsla á vetni með rafgreiningu er dýr, en það er eina leiðin til að búa það til hér á landi. Þess vegna yrði vetnið flutt inn. Vetni myndar vissulega ekki mengunarefni í borginni.

Í ljósi þess að metan er til og ekki nýtt þótti mér og okkur í Flokki fólksins eðlilegt að borgarstjórn fari fram á að þessi tvö fyrirtæki, Sorpa og Strætó bs. hafi samráð um að annað nýti efni sem hitt framleiðir. Hér er verið að tala um hagræðingu og sparnað. Við þessa tilhögun minnkar sú sóun sem felst í því að brenna metani og á móti er dregið úr innflutningi á eldsneyti. Skynsamlegt væri því að Strætó bs. eignaðist fleiri metanvagna eins og segir í greinargerðinni með tillögunni og nú er það að verða að veruleika.

Rökrétt er að reyna að nýta metangasið á stóra bíla almennt séð. Illa hefur gengið að koma því á almenna bílaflotann enda lítið reynt. Að nota gasið á strætisvagnana er því sjálfsagt mál. Það er sóun að brenna gasinu til einskis nema í þeim tilgangi að minnka gróðurhúsaáhrifin að sjálfsögðu. Metangassöfnun í Álfsnesi árið 2014 samsvaraði 2,2 milljónum bensínlítra og mun tvöfaldast með nýrri stöð. Þarna er nægt gas til að nýta á fjölmarga strætisvagna og aðra stóra bíla sé vilji til.

Kolbrún Baldursdóttir, borgarfulltrúi Flokks fólksins




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×