Mannskæð flugskeytaárás í Jemen Vésteinn Örn Pétursson skrifar 29. desember 2019 17:24 Eftirmálar árásarinnar. Vísir/AP
Minnst fimm eru látin eftir flugskeytaárás í Jemen í dag. Jemensk stjórnvöld telja uppreisnarsamtök Húta bera ábyrgð á árásinni. Árásin átti sér stað í bænum al-Dhalea, í lok útskriftarathafnar á vegum hersveita Öryggisbeltisins (e. security belt), sem eru hernaðarsamtök studd af Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Hersveitirnar hafa barist við hlið hersveita Jemen í baráttunni við Húta. Hútar hafa sjálfir ekki lýst yfir ábyrgð á árásunum, en þeir stóðu á bak við keimlíka árás á aðra útskriftarathöfn af sama meiði í ágúst á þessu ári. Þar létust á fjórða tug fólks. Auk þeirra fimm sem létust eru níu særð, eftir að loftskeytið hæfði áhorfendapall sem stóð nálægt hersýningunni. Áætlað er að tíu þúsund til sjötíu þúsund hafi tapað lífi í skæruhernaði milli Húta, sem studdir eru af Íran, og þeirra sem njóta stuðnings Sádiarabískra og Jemenskra stjórnvalda. Þar af er talið að tveir þriðju hafi týnt lífi í loftárásum Sáda.
Jemen Mest lesið „Mér finnst þeir vera að taka frá mér lífið“ Innlent Óljóst hvort Kínverjarnir geti sótt vélina sína Innlent Nafngreina árásarmanninn í Manchester Erlent Rauk upp úr flugvél Jet2 Innlent Segja falda launauppbót hjá níu af tíu stofnunum ríkisins Innlent Loka leikskóladeild á Stöðvarfirði vegna manneklu Innlent Föst á Spáni næstu mánuði vegna meðgöngukvilla Innlent Refsing fyrir að reyna að myrða lækni þyngd Innlent Ragnhildur tekur við Kveik Innlent Eðlilegt að Ísland skoði að taka þátt Innlent Fleiri fréttir Flugvellinum í München lokað vegna drónaumferðar Nafngreina árásarmanninn í Manchester Segist eiga í vopnuðum átökum við eiturlyfjasmyglara Árásin í Manchester skilgreind sem hryðjuverk Leiðtogafundur í Danmörku: „Rússar munu ekki stoppa fyrr en tilneyddir“ Tveir látnir og þrír alvarlega særðir eftir árás í Manchester Afganir fagna því að vera aftur komnir í samband við umheiminn Thunberg meðal 500 handtekinna aðgerðasinna Demókrötum kennt um og uppsögnum hótað Frelsisflotinn umkringdur og farþegar fluttir til Ísraels Jane Goodall látin Telja sig hafa fundið skipið sem skaut drónunum Brýnt að koma rafmagni aftur á kjarnorkuverið „Dimmur dagur“ í sögu Slóvakíu Völdu tveggja ára stúlku sem nýja jómfrúargyðju Höfuðpaur tælingarhóps dæmdur í þrjátíu og fimm ára fangelsi Chunk er loksins „feitasti“ björninn Átján tegundir af sólarvörn teknar úr sölu í Ástralíu Dómari skikkar lækna til að vanda skriftina Tæplega hundrað nemenda saknað Gríðarleg öryggisgæsla í Kaupmannahöfn í aðdraganda leiðtogafundar Ríkisreksturinn í Bandaríkjunum í limbó Tala látinna hækkar á Filippseyjum Lykillinn að kraftaverki að Birgir var frá Íslandi Fleiri en tuttugu látnir eftir jarðskjálfta á Filippseyjum Sendiherra fannst látinn í miðborg Parísar Tillögum Trumps lýst sem uppgjöf Segir herforingjum að búa sig undir átök gegn innlendum „óvinum“ Aðstoðarmaður AfD-leiðtoga í fangelsi fyrir njósnir Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Sjá meira