Sigrar hjá efstu þremur liðunum og Haukar burstuðu Snæfell Anton Ingi Leifsson skrifar 11. desember 2019 20:48 Úr leik Vals og Keflavíkur fyrr á leiktíðinni. vísir/bára
Efstu þrjú liðin í Dominos-deild kvenna unnu öll sína leiki er 12. umferðin fór fram í dag. KR fór í Grindavík og unnu nokkuð þægilegan sigur á botnliði Grindavíkur, 76-53, en KR-stúlkur voru 37-28 yfir í hálfleik. KR vann fjórða leikhlutann 16-2. Danielle Victoria Rodriguez skoraði 22 stig hjá KR og gaf þar að auki sex stoðsendingar og tók sjö fráköst. Sanja Orazovic skoraði sextán stig, tók tíu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Jordan Airess Reynolds var stigahæst í liði Grindavíkur með 20 stig. Hún tók þar að auki sex fráköst en Sigrún Elfa Ágústsdóttir skoraði tólf stig. Topplið Vals, sem tapaði fyrsta leiknum í síðustu umferð, lenti í engum vandræðum gegn Breiðablik á heimavelli en lokatölur urðu 90-69. valur leiddi 46-34 í hálfleik. Kiana Johnson gerði 32 stig fyrir Val, tók tíu fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Dagbjört Samúelsdóttir átti einnig mjög góðan leik en hún skoraði 23 stig, tók tvö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Danni L Williams skoraði 25 stig fyrir Breiðablik og tók þrettán fráköst. Telma Lind Ásgeirsdóttir gerði 16 stig, tók sjö fráköst og gaf þrjár stoðsendingar. Keflavík vann nauman sigur á Skallagrím á heimavelli, 69-63, en grunninn að sigrinum lagði Keflavík í öðrum leikhlutanum sem heimastúlkur unnu 17-3. Staðan í hálfleik var 30-20. Daniela Wallen Morillo var með átján stig hjá Keflavík og tók heil fimmtán fráköst. Emelía Ósk Gunnarsdóttir og Anna Ingunn Svansdóttir gerðu tólf stig hvor. Emilie Sofie Hesseldal var einu sinni sem oftar í aðalhlutverki hjá Skallagrím. Hún skoraði 28 stig, tók átján fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Keira Breeanne Robinson gerði 14 stig, tók fimm fráköst og gaf fjórar stoðsendingar. Haukar rúlluðu yfir Snæfell á heimavelli 101-81. Heimastúlkur fundu auðveldlega leiðina að körfunni en staðan í hálfleik var 48-37, Haukum í vil. Randi Keonsha Brown skoraði 24 stig hjá Haukum. Hún tók þar að auki níu fráköst og gaf átta stoðsendingar. Jannetje Guijt gerði 21 stig. Hjá gestunum var Emese Vida stigahæst með 24 stig og tók hún einnig átján fráköst en Veera Annika Pirttinen gerði nítján stig.Staðan í deildinni: Valur 22 stig Keflavík 18 stig KR 18 stig Skallagrímur 14 stig Haukar 14 stig Snæfell 6 stig Breiðablik 4 stig Grindavík 0 stig
Dominos-deild kvenna Mest lesið Sjáðu alblóðugan Kolbein lúskra á Tékkanum Sport Japan - Ísland 1-0 | Málning þornar Fótbolti „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Körfubolti „Hann vildi taka fimmtu spyrnuna“ Fótbolti Byrjunarliðin í Tókýó: Stefán Teitur og Liverpool-maður fyrirliðar Fótbolti HM-minningin: Barnalegur Pelé féll á prófinu Fótbolti Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Körfubolti Anton Haukur heimsmeistari í Varsjá Sport Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Handbolti Varði ekki eitt einasta skot en vann titilinn Fótbolti Fleiri fréttir „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Elvar byrjar vel hjá sínu nýja félagi Halldór Garðar kveður Keflavík Martin stigahæstur í svekkjandi tapi Úr fríi á Spáni til Íslands en endaði aftur á Spáni „Eins og ljósastaur fyrir drukkinn mann“ Sjá meira