Skoðun

Ábyrg fjármál Reykjavíkur og loftútreikningar

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir skrifar
Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar er til umræðu í dag. Fjárhagsáætlunin gerir ráð fyrir afgangi í rekstri borgarinnar, bæði A-hluta og samstæðu, þrátt fyrir að á milli umræðna hafi birst spár um meiri samdrátt í efnahagslífinu en áður hafði verið gert ráð fyrir. Meirihlutinn í borgastjórn vill mæta þessum samdrætti hagræðingarkröfu á rekstur og kraftmikla fjárfestingaráætlun sem verður 70% fjármögnuð með eigin fé og 30% með lántökum, þar sem haldið verður áfram með grænar og félagslegar lántökur á hagstæðum vöxtum. Við munum á næsta ári m.a. stíga stór skref til að brúa bil milli fæðingarorlofs og leikskóla og fara í metnaðarfulla uppbyggingu íþróttarmannvirkja í Breiðholti og Úlfarsárdal. Fjármögnun Borgarlínu hefur verið tryggð og endurspeglar bæði fjárhagsáætlun 2020 og fimm ára áætlun til 2024 grænar áherslur þessa meirihluta.

Einföldum, skýrum og skerpum

Á þessu árum hefur meirihlutinn í borgarstjórn unnið að því að einfalda, skýra og skerpa stjórnkerfi borgarinnar, til að tryggja góða stjórnarhætti í öllum okkar rekstri. Við höfum skýrt umboð og ábyrgð, einfaldað boðleiðir og skerpt á hlutverki lykileininga í stjórnsýslu borgarinnar. Við viljum að ákvarðanatakan verði betri og áreiðanlegri.

Um mitt þetta ár tók gildi nýtt skipulag Reykjavíkurborgar sem endurspeglar áherslur góðra stjórnarhátta og tekur innkaupamál borgarinnar föstum tökum. Þá var fjármálum borgarinnar og áhættustýringu gert hærra undir höfði til að tryggja agaða og góða fjármálastjórn, þar sem fjármunum er ráðstafað af ráðdeild og hagkvæmni og virkt eftirlit er með fjárfestingum og framkvæmdum. Borgarráð hefur ekki farið varhluta af þessum breytingum. Nú eru viðaukar vegna fjármála lagðir fyrir reglulega til að tryggja góða yfirsýn allra í samræmi við þá ábyrgð sem borgarfulltrúar bera til að hafa eftirlit með fjármálum borgarinnar. Við munum halda áfram á þessari vegferð ábyrgrar fjármálastjórnunar með því að horfa á hvernig megi einfalda, skýra og skerpa stjórnsýslu Reykjavíkur á sama tíma og við viljum þjónustumiðaða, skemmtilega og lifandi borg.



Loftútreikningar Sjálfstæðisflokksins

Oddviti Sjálfstæðisflokksins hélt því fram í Fréttablaðinu í morgun að Viðreisn hafi mistekist að halda uppi merkjum ábyrgrar fjármálastjórnunar, þar sem skuldir borgarinnar hafi aukist um margar Hörpur. Ef eitthvert sannleikskorn væri í þessum loftfimleikum oddvitans í útreikningum, þá gætu fulltrúar Viðreisnar mögulega tekið undir þessi orð. Þess í stað ætlum við að horfa á raunverulegar tölur sem sýna ábyrga fjármálstjórn, afgang af rekstri A-hluta og samstæðunnar í heild, hvernig varlegar verður farið í ný langtímalán og leiguskuldir en síðastliðin tvö ár. Þá verður einnig að hafa í huga að á árunum 2020 til 2024 verða afborganir lána og niðurgreiðsla skulda hærri en nýjar lántökur. Við munum á næsta ári, sem hingað til halda áfram á vegferð ábyrgrar fjármálastjórnunar, borgarbúum til heilla.

Höfunduer er formaður borgarráðs og oddviti Viðreisnar í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×