Stöðvuðu háþróaðan eldflaugabúnað á leið til Jemen Samúel Karl Ólason skrifar 4. desember 2019 22:05 Hermenn í stjórnarher Jemen. AP/Hani Mohammed
Áhöfn bandarísks herskips lagði nýverið hald á búnað sem talinn er vera úr eldflaugum frá Íran. Sjóliðar fóru um borð í smátt skip á Ómanflóa í síðustu viku og fundu þar eldflaugahlutana. Yfirvöld Bandaríkjanna telja að smygla hafi átt búnaðinum frá Íran til uppreisnarmanna Húta í Jemen. Bandaríkin hafa reglulega stöðvað sendingar vopna frá Íran til Húta. Þessi sending er þó sögð óhefðbundin þar sem búnaðurinn sem um ræðir sé verulega þróaður. Áhöfn skipsins var færð í hendur Strandgæslu Jemen og búnaðurinn er í haldi Bandaríkjanna. Írönum er óheimilt að flytja vopna til annarra ríkja, samkvæmt ályktunum Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna og þar að auki segir önnur ályktun til um að ólöglegt sé að útvega Hútum vopn. Íranar hafa þó ítrekað verið sakaðir um að flytja gífurlegt magn vopna til hópa víðsvegar um Mið-Austurlönd. Átökin í Jemen eru að miklu leyti á milli Íran og Sádi-Arabíu sem styðja mismunandi fylkingar.Samkvæmt Reuters hafa Hútar framleitt töluvert af eldflaugum í Jemen með hjálp erlendis frá varðandi sérfræðiþekkingu sem til þarf og eldflaugabúnað frá Íran. Þar að auki hafa þeir lagt hald á fjölda vopna frá stjórnarher Jemen.Sádar sögðu frá því í sumar að Hútar hefðu skotið minnst 226 eldflaugum og 710.606 sprengjum að Sádi-Arabíu.
Bandaríkin Íran Jemen Mest lesið Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Nóg sé komið af Trump Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira