Fótbolti

Ef EM-draumurinn rætist spilar Ísland í Búkarest, Búdapest, Amsterdam eða München

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ísland gæti leikið á Allianz Arena í München á EM næsta sumar.
Ísland gæti leikið á Allianz Arena í München á EM næsta sumar. vísir/getty
Ef Ísland kemst á EM 2020 verður liðið annað hvort með Þýskalandi eða Hollandi í riðli.

Íslenska liðið fer í umspil um sæti á EM í mars á næsta ári. Í undanúrslitum umspilsins mætir Ísland annað hvort Ungverjalandi eða Rúmeníu á Laugardalsvelli 26. mars. Fimm dögum síðar verður úrslitaleikur um sæti á EM. Dregið verður í umspilið á föstudaginn. Sýnt verður beint frá drættinum klukkan 11:00 á Stöð 2 Sport og hér á Vísi.

Vinni Ísland leikina tvo í umspilinu tryggir það sér sæti á öðru Evrópumótinu í röð. Þar verður Ísland annað hvort í C- eða F-riðli.

Búkarest og Amsterdam eru borgirnar í C-riðli. Búdapest og München eru borgirnar í F-riðli.
Ljóst er að Holland og Úkraína verða í C-riðli. Allir þrír leikir Hollendinga fara fram á Johann Cruyff-vellinum í Amsterdam, heimavelli Ajax. Hinir þrír leikirnir verða á þjóðarleikvangi Rúmeníu í Búkarest.

Ísland getur einnig lent í F-riðli með Þýskalandi. Allir leikir þýska liðsins fara fram á heimavelli Bayern München, Allianz Arena. Hinir þrír leikirnir í riðlinum verða á nýjum og glæsilegum þjóðarleikvangi Ungverjalands í Búdapest.

Dregið verður í riðla á EM 30. nóvember næstkomandi.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×