Lífið

Áhrifamiklar örsögur

Björk Eiðsdóttir skrifar
Aðstandendur myndarinnar; leikstjórinn og handritshöfundurinn Rúnar Rúnarsson, Lilja Snorradóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson og Elli Cassata.
Aðstandendur myndarinnar; leikstjórinn og handritshöfundurinn Rúnar Rúnarsson, Lilja Snorradóttir, Vigfús Þormar Gunnarsson og Elli Cassata. Fréttablaðið/Ernir
Íslenska kvikmyndin Bergmál var frumsýnd með pompi og prakt í Háskólabíói á þriðjudaginn. Virtust frumsýningargestir hrífast með af sögunum 58 sem gerast í aðdraganda jóla hér á landi.

Segja má að jólaandinn hafi fyllt aðalsal Háskólabíós á meðan á frumsýningu á íslensku kvikmyndinni Bergmál stóð á þriðjudaginn var.

Leikstjórinn og handritshöfundurinn Rúnar Rúnarsson, sem áður hefur m.a leikstýrt kvikmyndunum Þrestir og Eldfjall, fer hér svo sannarlega nýjar leiðir og brýtur upp hið hefðbundna form kvikmyndar.

Tónlistarmennirnir Erpur Eyvindarson eða Blaz Roca og Huginn mættu ferskir. Fréttablaðið/Ernir

Yfir þrjú hundruð leikarar

Engir aðalleikarar eru í kvikmyndinni og í raun engir þekktir leikarar en í kringum 330 manns fara með hlutverk í henni.

Ekki er um heildstæðan söguþráð að ræða heldur sjáum við 58 ljúfar, sárar, fyndnar og bitrar hversdagslegar örsögur. Allar eru þær leiknar af lítt - eða óreyndum leikurum sem augljóslega er vel stýrt og ekki er að sjá að um frumraun fyrir framan kvikmyndavél er að ræða í langflestum tilvikum.

Helgi Björns, Arnór Pálmi og Gunnar Hansson. Fréttablaðið/Ernir
Sögurnar sem allar eiga sér stað í aðdraganda jóla og voru teknar fyrir síðustu jól, fanga vel fjölbreytileika lífsins litrófs og verða klárlega frábær heimild um íslenskan samtíma þegar fram líða stundir.

Nú þegar hefur verið ákveðið að myndin fari í sýningar í 25 kvikmyndahúsum í Hollandi í desember og hefur hún verið sýnd á kvikmyndahátíðum víða um heim frá því í haust, við góðar undirtektir.

Íslensk jól ferðast því víða þetta árið og ættu íslensk jólabörn, kvikmyndaáhugafólk og þeir sem almennt hafa áhuga á mannlegu eðli og ýmsum birtingarmyndum þess ekki að láta Bergmál framhjá sér fara.

Mæðginin Agnes Kristjónsdóttir og Haraldur Ari Stefánsson. Fréttablaðið/Ernir
Leikhúshjónin Arnar Jónsson og Þórhildur Þorleifsdóttir brostu sínu breiðasta. Fréttablaðið/Ernir
Svanhildur Jakobsdóttir mætti ásamt Stefaní­u Svölu Borg. Fréttablaðið/Ernir
Nöfnurnar Ísold og Ísold Arna skemmtu sér vel. Fréttablaðið/Ernir
Jón Teitur, Glóey og Móey. Fréttablaðið/Ernir
Björn Emilsson og Ragna Fossberg. Fréttablaðið/Ernir





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.