Birtir staðfestingu aðalskipulags vegna leiðarvals um Teigsskóg Kristján Már Unnarsson skrifar 25. nóvember 2019 16:04 Úr Teigsskógi við Þorskafjörð. Vísir/Egill Aðalsteinsson.
Skipulagsstofnun hefur birt staðfestingu á aðalskipulagi Reykhólahrepps vegna Vestfjarðavegar milli Bjarkalundar og Skálaness um Teigsskóg. Skipulagsbreytingin felur jafnframt í sér nánari útfærslu á þverunum yfir Þorskafjörð, Djúpafjörð og Gufufjörð auk efnistökusvæða vegna lagningar vegarins. Á heimasíðu Skipulagsstofnunar er saga málsins rakin allt frá því fyrsta umhverfismat hófst árið 2003. Raktir eru þeir leiðarvalkostir sem komið hafa til skoðunar, bæði í fyrra umhverfismatsferli á árunum 2003-2006 og því síðara á árunum 2014-2017.Teigsskógarleiðin styttir Vestfjarðaveg um 22 kílómetra. Veglínan liggur þvert yfir mynni Gufufjarðar og Djúpafjarðar og yfir Þorskafjörð með þverun á móts við Þórisstaði.Teikning/Vegagerðin.Stofnunin rifjar upp þá meginniðurstöðu sína úr síðasta umhverfsmati að allar framlagðar veglínur hefðu neikvæð áhrif á náttúruminjar sem nytu verndar samkvæmt lögum. Jafnframt lægi fyrir að nauðsyn væri talin á að bæta samgöngur um svæðið og að endurbygging núverandi vegar væri ekki talinn vera raunhæfur valkostur. Mat Skipulagsstofnunar var að svokölluð leið D2, með jarðgöngum undir Hjallaháls, væri sá kostur sem uppfyllti best markmið laga um að draga eins og kostur væri úr neikvæðum áhrifum framkvæmda. Sveitarstjórn Reykhólahrepps samþykkti engu að síður svokallaða ÞH-leið, um Teigsskóg.Veglínur sem Vegagerðin skoðaði sem framtíðarlegu Vestfjarðavegar um Gufudalssveit. Leið R er svipuð leið A1 en liggur áfram um Reykhóla og Berufjörð.Kort/Vegagerðin.„Sveitarstjórn Reykhólahrepps hefur farið yfir og brugðist við þeim athugasemdum og umsögnum sem bárust á kynningartíma skipulagstillögunnar og samþykkti í október 2019, aðalskipulagsbreytinguna með legu Vestfjarðavegar samkvæmt leið Þ-H og afgreiddi hana til staðfestingar Skipulagsstofnunar,“ segir stofnunin. Rakið er að í bókunum við afgreiðslu sveitarstjórnar á aðalskipulagsbreytingunni komi fram að sveitarstjórn hafi leitað allra leiða til að draga úr neikvæðum áhrifum á umhverfið og skoðað aðra valkosti en tillögu um leið Þ-H til að koma í veg fyrir áhrif á Teigsskóg og leirur. Ennfremur að sveitarstjórn hafi leitað leiða til að draga úr kostnaði við jarðgangagerð samkvæmt leið D2 og skoðað nýja valkosti, R og A3.Úr Teigsskógi við Þorskafjörð. Til hægri má sjá malarslóða sem liggur um hluta skógarins.Mynd/Stöð 2.„Það sé niðurstaða sveitarstjórnar að ef bæta eigi samgöngur og umferðaröryggi í Reykhólahreppi sem fyrst, sé Þ-H eina færa leiðin,“ segir á vef Skipulagsstofnunar. Fram kemur að þótt gripið verði til mótvægisaðgerða verði ekki unnt að bæta fyrir sjávarfitjar, sérstæðan birkigróður eða votlendi sem njóti verndar en þó séu settir skilmálar um endurheimt á gróðurlendum, votlendi og birkiskógi og gerð krafa um tilraunir til að endurheimta leirur. Hér má sjá frétt Stöðvar 2 um staðfestingu aðalskipulagsins:
Reykhólahreppur Samgöngur Teigsskógur Tengdar fréttir Samgönguráðherra efast um að fjármunir fáist í R-leiðina Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra efast um að nægir fjármunir fáist í svokallaða R-leið Vestfjarðavegar. Sveitarstjórn Reykhólahrepps hyggst taka ákvörðun um veglínu á morgun. 21. janúar 2019 20:00 Vonast til að geta boðið út Teigsskógarleið fyrir árslok Vegamálastjóri vonast til að geta boðið út sjö milljarða króna framkvæmdir við Vestfjarðaveg um Teigsskóg fyrir árslok eftir að hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti þá veglínu í dag. 22. janúar 2019 20:00 Krafa um göng í stað vegar um Teigsskóg gæti þýtt áratugabið Hugmynd um að leysa Teigsskógarhnútinn með jarðgöngum gæti þýtt áratugabið á framkvæmdum, miðað við þá jafnvægispólitík sem tíðkast í skiptingu vegafjár milli landshluta. 23. janúar 2019 20:15 Staðfestir aðalskipulag með vegi um Teigsskóg Skipulagsstofnun hefur staðfest veglínu Vestfjarðavegar um Teigsskóg og stefnir Vegagerðin að því að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir lok mánaðarins. 19. nóvember 2019 22:30 Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira
Samgönguráðherra efast um að fjármunir fáist í R-leiðina Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra efast um að nægir fjármunir fáist í svokallaða R-leið Vestfjarðavegar. Sveitarstjórn Reykhólahrepps hyggst taka ákvörðun um veglínu á morgun. 21. janúar 2019 20:00
Vonast til að geta boðið út Teigsskógarleið fyrir árslok Vegamálastjóri vonast til að geta boðið út sjö milljarða króna framkvæmdir við Vestfjarðaveg um Teigsskóg fyrir árslok eftir að hreppsnefnd Reykhólahrepps samþykkti þá veglínu í dag. 22. janúar 2019 20:00
Krafa um göng í stað vegar um Teigsskóg gæti þýtt áratugabið Hugmynd um að leysa Teigsskógarhnútinn með jarðgöngum gæti þýtt áratugabið á framkvæmdum, miðað við þá jafnvægispólitík sem tíðkast í skiptingu vegafjár milli landshluta. 23. janúar 2019 20:15
Staðfestir aðalskipulag með vegi um Teigsskóg Skipulagsstofnun hefur staðfest veglínu Vestfjarðavegar um Teigsskóg og stefnir Vegagerðin að því að sækja um framkvæmdaleyfi fyrir lok mánaðarins. 19. nóvember 2019 22:30