Því miður er Szymon ekki með flautuna að þessu sinni Óskar Ófeigur Jónsson í Antalya skrifar 13. nóvember 2019 15:00 Szymon Marciniak hefur dæmt tvo síðustu landsleiki Íslands og Tyrklands og íslensku strákarnir hafa unnið þá báða. Getty/Oliver Hardt
Pólverjinn Szymon Marciniak hefði líklega verið óskadómari Íslands í leik Tyrklands og Íslands í Istanbul á morgun. Szymon Marciniak hefur nefnilega dæmt tvo síðustu leiki þjóðanna og í þeim báðum hefur íslenska liðið fagnað góðum sigri. Szymon dæmdi síðasta leik þjóðanna í Laugardalnum í júní, sem Ísland vann 2-1, en hann dæmdi einnig leik þjóðanna í Eskisehir í október 2017 sem Ísland vann 3-0. Ísland tapar heldur ekki þegar Szymon Marciniak er með flautuna en hann dæmdi einnig 2-1 sigurleik Íslands á móti Austurríki á EM 2016 og svo 1-1 jafnteflisleik á móti Argentínu á HM 2018. Dómarinn á Türk Telekom Arena annað kvöld verður Englendingurinn Anthony Taylor sem er eða dæma hjá báðum þjóðum í fyrsta sinn. Það er kannski það næstbesta í stöðunni að fá Englending með flautuna því landi Anthony Taylor, Mark Clattenburg, dæmdi leik Íslands og Tyrklands í undankeppni HM 2018 sem Ísland vann 2-0 á Laugardalsvellinum. Í enn öðrum sigurleik Íslands á Tyrkjum á síðustu árum kom dómarinn frá Króatíu (Ivan Bebek) en var aftur á móti Ítalinn Gianluca Rocchi sem dæmdi tapleikinn í Tyrklandi í október 2015. Ísland hefur tapað öllum þremur leikjunum sem Gianluca Rocchi hefur dæmt þar á meðal 1-0 á móti Frökkum á Laugardalsvellinum í október. Þriðji leikurinn er tapleikur á móti Króatíu úti í Króatíu í nóvember 2016.
EM 2020 í fótbolta Mest lesið Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar Fótbolti Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Fótbolti Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada Fótbolti Aron Einar heim í Þorpið? Íslenski boltinn Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Fótbolti Mistök Wembanyama leiddu til annars sigurs Knicks Sport „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fótbolti HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Fótbolti Fleiri fréttir Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Írarnir hans Heimis skemmdu kveðjupartý Kanada HM-minning: „Leyfið þeim að kyssast“ Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan „Við nutum þess í botn að vera þarna“ Fór á spítala og HM gæti verið í hættu Hefur ekki áhyggjur af slæmum velli Myndasyrpa: Sara Björk snýr heim Verður hjá Celtic eitt ár í viðbót Markaveisla í Lengjudeildinni Heimsmeistararnir lögðu Evrópumeistarana Stórsigur hjá Belgum undir stjórn Elísabetar „Markmiðinu er náð“ Uppgjörið: Úkraína - Ísland 0-1 | Stórt skref í átt að HM Aron Einar heim í Þorpið? Náðu miðum á HM án þess að borga fyrir þá Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Lið Íslands gegn Úkraínu: Thelma, Sandra og Emilía fremstar Furðu lostinn yfir brottrekstri Freys Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Hjóluðu á HM frá Argentínu til Bandaríkjanna Þurfa að borga tvo milljarða til að fá José Mourinho Þrír Arsenal-leikmenn tilnefndir sem leikmaður ársins Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Stuðningsmannahópar Celtic vilja ekki fá Keane Ekki Andabæjarútgáfa af norskri menningu HM-minning: Tapið sem fékk alla Brasilíu til að gráta og banna búninginn Tækifæri bjóðist í fjarveru Sveindísar í lykilleik dagsins Sjá meira