Segir Gunnlaug og sveitarstjórn ekki hafa gengið í takt Atli Ísleifsson skrifar 14. nóvember 2019 13:00 Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar, segir uppsögnina ekki tengjast máli tengdu Gunnlaugi A. Júlíussyni sem DV segir frá í dag. Mynd/James Einar Becker/Egill
Forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar segir að rekja megi uppsögn sveitarstjórans Gunnlaugs A. Júlíussonar til þess að skortur hafi verið á sameiginlegri sýn milli sveitarstjórnar og sveitarstjóra á ákveðin mál sem snúa að stjórnun og framtíðarsýn sveitarfélagsins. Greint var frá uppsögninni í gær. Lilja Björg Ágústsdóttir, forseti sveitarstjórnar Borgarbyggðar, segir að eins og gerist og gangi hafi komið upp ágreiningsmál þar sem aðilar hafi haft ólíka sýn á málefnin. Aðilar hafi ekki verið að ganga í takt. „Þetta er ekkert nýtt af nálinni. Í þessu tilviki var talið heillavænlegast að slíta samstarfi við sveitarstjórann. Þessi ákvörðun er ekki tekin af léttúð. Það sem mestu skiptir er að starfsemi sveitarfélagsins verði óskert og að það skapist gott vinnuumhverfi til að við getum tekist á við þau mikilvægu verkefni sem framundan eru.“ Hún segir sveitarstjórn hafa borið hagsmuni íbúa Borgarbyggðar fyrir brjósti og að sú vinna sem framundan sé innan sveitarfélagsins krefjist þess að allir séu samstiga. „Fyrir hönd sveitarstjórnar vil ég líka koma á framfæri þökkum til Gunnlaugs fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins. Við óskum honum líka velfarnaðar á nýjum vettvangi.“ Borgarfjarðarbrúin.Vísir/Egill Reynt á samstarfið í eitt og hálft ár Í yfirlýsingu sem send var á fjölmiðla í gær og birtist á vef sveitarfélagsins sagði að „mismunandi sýn á stjórnun sveitarfélagsins [hafi gert] það að verkum að sveitarstjórn og Gunnlaugur hafi ákveðið að slíta samstarfi. „Gunnlaugur hefur frá því að hann kom til starfa fyrir sveitarfélagið unnið vel að mörgum mikilvægum málum og er honum þakkað fyrir sitt framlag. Sveitarstjórn stendur einhuga á bakvið þessa ákvörðun,“ sagði í yfirlýsingunni. Lilja Björg segir að sveitarstjórn hafi fundið fyrir því að það væri ólík sýn milli þeirra og sveitarstjórans varðandi afgreiðslu og umræðu í tengslum við ákveðin mál. „Það var ekki eitthvað eitt sem leiddi til þessarar niðurstöðu. Það hefur reynt á þetta samstarf í eitt og hálft ár. Við töldum rétt að nú skyldi leiðir skilja.“ Gunnlaugur hóf störf sem sveitarstjóri árið 2016 og var endurráðinn eftir sveitarstjórnarkosningarnar á vordögum 2018. „Þetta var rætt á sínum tíma og ákveðið að sjá til hvernig samstarfið myndi ganga,“ segir Lilja Björg. Gunnlaugur A. Júlíusson.Vefur Borgarbyggðar Ákvörðun tekin á óformlegum fundi fyrr í vikunni Sveitarstjórn Borgarbyggðar fundar með formlegum hætti á um mánaðarfresti, en segir Lilja Björg að hún eigi þó í góðum samskiptum á milli funda. Segir Lilja að ákvörðun hafi verið tekin um að segja Gunnlaugi upp störfum á einum slíkum óformlegum fundi fyrr í vikunni. Formleg ákvörðun verði hins vegar tekin á sveitarstjórnarfundi síðar í dag. Lilja Björg segir að á fundinum í dag verði einnig rætt um ráðningarferli varðandi nýjan sveitarstjóra. Segir hún líklegustu niðurstöðuna vera þá að staðan verði auglýst og vonast hún til að ráðningarferli geti hafist eins fljótt og auðið er. Tengist ekki kæru um einelti Aðspurð um hvort að uppsögnin tengist máli sem DV sagði frá í morgun segir Lilja Björg að svo sé ekki. Í fréttinni segir að fyrrverandi starfsmaður í stjórnunarstöðu hjá Borgarbyggð hafi kært Gunnlaug fyrir einelti til Vinnueftirlits ríkisins, en honum hafði verið sagt upp stöfum þegar hann var í veikindaleyfi eftir vinnuslys. „Það hefur ekki borist neitt erindi til Borgarbyggðar varðandi kæru um einelti. Við erum búin að kanna það og þetta mál tengist ekkert starfslokum Gunnlaugs,“ segir Lilja Björg. „Svo var bara game over“ Gunnlaugur vildi ekki ræða uppsögnina þegar Vísir náði tali af honum í gær. Hann birti þó færslu á Facebook þar sem hann fór yfir sín störf hjá sveitarfélaginu og segist ánægður að hafa fengið tækifæri til að kynnast því „innan frá“. Í byrjun færslunnar segir hann frá embættisverki sem hann virðist ekki hafa átt von að yrði hans síðasta. „Það var amen eftir efninu að mitt síðasta verk hjá Borgarbyggð var að stjórna fundi í Hjálmakletti um nauðsyn svefns í verkefninu Heilsueflandi samfélag. Þar söng Soffía í Einarsnesi söngva sína, ung grunnskólabörn lásu frumsamdar sögur sem tengdust svefni og að lokum flutti Dr. Erla Björnsdóttir mjög áhugaverðan fyrirlestur um svefn. Við innleiddum Heilsueflandi samfélag haustið 2016. Á vegum þessa verkefnis hefur síðan verið staðið fyrir mörgum góðum viðburðum. Svo var bara game over,“ segir Gunnlaugur. Í færslunni segist hann mjög ánægður og stoltur yfir þessum þremur og hálfu ári sem hann hafi starfað sem sveitarstjóri Borgarbyggðar.
Borgarbyggð Sveitarstjórnarmál Uppsögn sveitarstjóra Borgarbyggðar Tengdar fréttir Gunnlaugi sagt upp störfum hjá Borgarbyggð Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur sagt Gunnlaugi A. Júlíussyni upp störfum. 13. nóvember 2019 12:31 Herör gegn dónaskap í ráðhúsinu í Borgarnesi Sveitarstjóri Borgarbyggðar segir mikilvægt að samskipti íbúa sveitarfélagsins við starfsfólk ráðhússins batni. Það gerist of oft að óbreyttir starfsmenn verði fyrir óhefluðu orðavali eða köpuryrðum í sinn garð. 30. ágúst 2018 06:00 Mest lesið Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Innlent Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Maður sem féll í Ölfusá fundinn Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Fleiri fréttir „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Sjá meira
Gunnlaugi sagt upp störfum hjá Borgarbyggð Sveitarstjórn Borgarbyggðar hefur sagt Gunnlaugi A. Júlíussyni upp störfum. 13. nóvember 2019 12:31
Herör gegn dónaskap í ráðhúsinu í Borgarnesi Sveitarstjóri Borgarbyggðar segir mikilvægt að samskipti íbúa sveitarfélagsins við starfsfólk ráðhússins batni. Það gerist of oft að óbreyttir starfsmenn verði fyrir óhefluðu orðavali eða köpuryrðum í sinn garð. 30. ágúst 2018 06:00