Norðmenn héldu EM draumnum á lífi Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. nóvember 2019 19:00 Lars Lagerbäck, þjálfari norska liðsins. Vísir/Getty
Norðmenn unnu mikilvægan sigur í baráttunni um sæti á EM 2020 í kvöld. Finnar tryggðu sæti sitt. Möguleiki Norðmanna á að fara upp úr riðlinum er lítill, en þó enn ekki úr sögunni þar sem þeir fóru létt með að sigra Færeyinga á heimavelli. Það tók Tore Reginiussen aðeins fjórar mínútur að koma Norðmönnum yfir og Iver Fossum var búinn að koma þeim í 2-0 á 8. mínútu. Í seinni hálfelik skoraði Alexander Sorloth tvö mörk á þriggja mínútna kafla og gerði endanlega út um leikinn, lokatölur 4-0. Norðmenn eru með 14 stig í riðlinum í fjórða sæti, líkt og Rúmenar og stigi á eftir Svíum. Rúmenar og Svíar mætast seinna í kvöld. Þar þurfa Norðmenn á jafntefli að halda.
EM 2020 í fótbolta Tengdar fréttir Bein útsending: Armenía - Grikkland Vísir er með beina sjónvarpsútsendingu frá völdum leikjum í undankeppni EM 2020. 15. nóvember 2019 18:00
Bein útsending: Armenía - Grikkland Vísir er með beina sjónvarpsútsendingu frá völdum leikjum í undankeppni EM 2020. 15. nóvember 2019 18:00