Verið að „fínpússa“ fjölmiðlafrumvarpið
Með frumvarpinu er meðal annars gert ráð fyrir stuðningi í formi endurgreiðslna til einkarekinna fjölmiðla og að dregið verði úr umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Lilja Alfreðsdóttir kynnti áformin í september í fyrra en þá var stefnt að því að verja um 400 milljónum króna á ári til þess að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla. Stefnt var að því að lögin tækju gildi strax um áramótin.
Samkvæmt fyrstu drögum frumvarpsins var meðal annars lagt til að endurgreiddur yrði hluti af tilteknum ritstjórnarkostnaði sem þó geti aldrei orðið meiri en sem nemur 50 milljónum á ári. Frumvarpið var til umsagnar í samráðsgátt frá 31. janúar til 15. febrúar á þessu ári og bárust alls 27 umsagnir. Frumvarpinu var síðan útbýtt á Alþingi fyrir sumarhlé í maí en gekk aldrei til fyrstu umræðu. Ekki fengust svör frá ráðuneytinu um hvort og þá hvaða frekari breytingar stæði til að gera á frumvarpinu áður en það verður endurflutt.
Í svari ráðuneytisins segir að umfang stærstu frumvarpa mennta- og menningarmálaráðherra á þessu haustþingi; nýs lánasjóðsfrumvarps, sviðslistafrumvarps og fjölmiðlafrumvarps, hafi vaxið og vinna við þau hafi tekið lengri tíma en gert hafi verið ráð fyrir. Frumvarp um nýjan menntasjóð námsmanna og sviðslistafrumvarp eru bæði tilbúin en ráðherra mælti fyrir því síðarnefnda á Alþingi nýverið. Vinnu við fjölmiðlafrumvarpið er aftur á móti ekki lokið en stefnt er að því að það verði lagt fram fyrir áramót en nákvæm tímasetning liggur þó ekki fyrir líkt og áður segir.
Fréttin hefur verið uppfærð.
Tengdar fréttir
Ríkisstjórnin samþykkti fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra
Stjórnarflokkarnir eiga enn eftir að afgreiða frumvarpið áður en hægt verður að leggja það fyrir á þingi. Kveðið er á um styrki til einkarekinna fjölmiðla.
Fjölmiðlafrumvarpið stendur í Sjálfstæðisflokknum
Ólíklegt að fjölmiðlafrumvarp Lilju verði að lögum á vorþingi.
Lilja reiknar með að fjölmiðlafrumvarp verði samþykkt í haust
Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menninarmálaráðherra, reiknar með að fjölmiðlafrumvarp hennar verði afgreitt frá Alþingi í haust þrátt fyrir fyrirvara og andstöðu þingflokks Sjálfstæðisflokksins við frumvarpið. Hún reiknar ekki með efnislegum breytingum á frumvarpinu.
Fjölmiðlafrumvarp lagt fram á Alþingi
Frumvarp til laga um breytingu á fjölmiðlalögum hefur nú verið lagt fram á Alþingi og mun Lilja Alfreðsdóttir, mennta-og menningarmálaráðherra mæla fyrir frumvarpinu nú á vorþingi.
Sigríður gefur lítið sem ekkert fyrir fjölmiðlafrumvarp Lilju
Telur afar vafasamt að ríkið styrki fjölmiðla á markaði.
Lilja leitar sátta með fjölmiðlafrumvarp sitt
Lilja Alfreðsdóttir segir í undirbúningi að taka Ríkisútvarpið af auglýsingamarkaði.