Pönkhljómsveit fyrir eldri borgara Steingerður Sonja Þórisdóttir skrifar 23. október 2019 06:00 Gígja vonast til að heyra frá sem flestum eldri borgurum sem hafa áhuga á að taka þátt í námskeiðinu. „
Þetta verkefni spratt upp úr gjörningi sem ég gerði fyrst fyrir tveimur árum. Hann heitir WikiHow to start a punk band og fólst í því að ég fylgdi leiðbeiningum af WikiHow. com um hvernig stofna ætti pönkhljómveit, en það hafði verið langþráður draumur hjá mér að vera í slíkri,“ segir Gígja Jónsdóttir.Skapa hliðarsjálf Gígja Jónsdóttir er menntaður dansari og myndlistarkona. Hún blandar báðum þekkingarheimum saman í gjörningum sínum. Hún segir hugmyndina að gjörningnum hafa sprottið upp úr vangaveltum um hve Internetið sé orðið samofið lífi okkar í dag og fólk leiti þangað til að þjálfa upp hæfni eða læra nýja hluti. „Þetta var smá gagnrýni en líka tilraun til að upphefja þessa menningu, það að fólk haldi að það geti lært að gera nánast hvað sem er á Internetinu. Í gjörningnum voru áhorfendur meðlimir hljómsveitarinnar. Ég skapaði aðferðir í kringum öll skrefin og í samvinnu við gesti sýningarinnar varð hljómsveitin til.“ Nú hafa orðið til nokkrar sveitir út frá gjörningnum en Gígja hefur líka verið með námskeið byggt á hugmyndafræði hans. „Ég vildi breyta þessu í námskeið. Fyrsta námskeiðið var með ungu fólki. Þá voru engir áhorfendur en ég fór ítarlegar í hvert skref. Námskeiðið er 5-8 dagar í staðinn fyrir tvær klukkustundir. Þannig verður vinnan dýpri. Á námskeiðunum sköpum við líka hliðarsjálf þótt allir séu í raun þeir sjálfir í ferlinu, það er meira til að auka á listræna frelsið. Þá gefur fólk sér meira rými til að prufa hluti sem það hefur ekki leyft sér áður.“ Dans ekki bara fyrir ungt fólk Gjörningurinn var sýndir á einleikjahátíðinni Act Alone á Suðureyri í ár og fékk góðar viðtökur. Fyrir mánuði stóð Gígja svo fyrir námskeiði með Forward Youth Dance Company, sem er ungdansflokkur. „Þátttakendurnir í því námskeiði stofnuðu hljómsveitina The Boob Sweat Gang, sem er enn starfandi og mun koma fram í Iðnó í næstu viku. Þannig að námskeiðið varð til þess að úr varð alvöru pönkhljómsveit.“ Næst á dagskrá hjá Gígju er að halda sams konar námskeið fyrir eldri borgara og lýsir því Gígja eftir fólki yfir 65 ára sem langar að stofna pönkhljómsveit. „Þetta námskeið verður haldið í samvinnu við Reykjavík Dance Festival. Hátíðin í ár er samfélagsmiðuð og er verkunum ætlað að skoða jaðar- og minnihlutahópa í samfélaginu, ásamt því að reyna að gera dansinn sem aðgengilegastan fyrir alla. Það er svo fastur stimpill á dansinum að hann sé bara fyrir ungt fólk, eins og maður sé bara brunninn út sem dansari þegar maður er 35 ára. Þannig að mig langar að leika með þessi ímynduðu aldurstakmörk.“ Pönkið er drifkraftur Hún segir pönkið hafa líka meira verið tengt við yngra fólk í gegnum árin. „Mér finnst ótrúlega spennandi og áhugavert að sjá hvernig þroskað pönk kemur út. Svo held ég að það sé líka hollt og gaman fyrir eldra fólk að fá einhvers konar pláss til að skapa á þennan hátt. Margir gefa sjálfum sér minna frelsi í tilraunastarfsemi og flipp þegar þeir eldast. Mig langar að eiga samtal við þessa kynslóð og draga hana inn í dansinn. Ég nota pönkið sem drifkraft. Þetta er form sem við erum að leika okkur með sem er frelsandi og gefur fólki rými til að finna sína rödd.“ Því óskar Gígja eftir að heyra frá eldri og heldri borgurum sem hafa áhuga á pönki, dansi eða bara langar að prófa eitthvað nýtt. Hægt er að senda inn spurningar og umsókn á tölvupóstfangið gigjajons@gmail.com
Birtist í Fréttablaðinu Eldri borgarar Tónlist Mest lesið Mig langaði til að öskra: „Ég skal segja allt af létta!“ Gagnrýni Harbour rýfur þögnina Bíó og sjónvarp Hefur þegar fengið starfstilboð Lífið Hvað veistu um… árið 2010? Lífið Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Lífið „Það má herma“ Tíska og hönnun Swae Lee heldur tónleika á Íslandi Tónlist Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Lífið Guðrún Ýr og Birnir í eina sæng Tónlist „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Lífið Fleiri fréttir Marteinn Helgi Sigurðsson er látinn Hefur þegar fengið starfstilboð Hvað veistu um… árið 2010? Lífseigustu mýturnar um offitu: „Það er ekki sjúkdómur að fitna“ Sjö heitustu brúðkaupstrendin í sumar „Ég var löngu tilbúin að giftast honum“ Rassaumhirða karla í sókn Leggja áherslu á liti, gleði og glimmer Segir Weinstein hafa bannað sér að vera lesbía Hætt saman en ennþá vinir Varð ástfanginn á sama tíma og móðir hans kvaddi Lára Clausen lýsir eftir stolnum Mustang Blendnar tilfinningar að fara á vinnumarkað á ný Lofuðu svörtu fólki lækningu en blekktu það til dauða „Ég passaði mig sérstaklega á því að tala ekki um Evrópusambandið“ Vigdís Häsler og Sveinn Andri gengu í hnapphelduna Huggulegustu hommar landsins „loksins“ giftir Adam Páls fann ástina í örmum Moniku Stjörnulífið: Rapparar ástfangnir upp fyrir haus Myndaveisla: Líf og fjör úti á Granda Hringdi strax í pabba og sagði honum frá Bond-leiknum Krakkatía vikunnar: Jónas, þjóðardýr og einmanalegt áhugamál Verður yngsta skvettan í þingflokki Sjálfstæðismanna Vesturbæingar kvöddu sögufræga bensínstöð Allt að verða klárt fyrir Sjómannadaginn í Reykjavík Allir og amma þeirra senda kónginum afmæliskveðju Fann ástina á Tinder og endaði í Texas Þegar tónlistin heltók lögmanninn Fréttatía vikunnar: Dua, Danir og Carpenter Anthony Head er látinn Sjá meira