Simmi Vill sofnaði í bílnum í 3 klukkutíma - Þetta var algjör geðveiki! Íslenski Draumurinn kynnir 24. október 2019 13:30 Sigmar Vilhjálmsson hefur komið víða við á sínum viðskiptaferli og lætur allt flakka í fyrsta þætti hlaðvarpsins Íslensku Draumurinn.
Sigmar Vilhjálmsson fer yfir ævintýralegan viðskiptaferil sinn í fyrsta þætti Íslenska Draumsins, nýs hlaðvarps sem fór í loftið síðastliðinn mánudag en þættirnir eru gefnir út á öllum helstu streymisveitum. Sigurður Sindri Magnússon stendur á bak við hlaðvarpið ásamt Eyþóri Jónssyni en í þáttunum tekur Sigurður viðtöl við íslenska frumkvöðla og viðskiptamenn og fer yfir þeirra feril. „Mér fannst vanta nánari innsýn inn í hugarheim þessara aðila sem eru þekktir í íslensku viðskiptalífi, hvað þeir eru að hugsa og hvaða ráð þeir eiga handa þeim sem hafa áhuga á að hefja rekstur,“ segir Sigurður. „Við erum með skýran fókus í Íslenska Draumnum. Ég hef sjálfur verið í fyrirtækjarekstri síðan árið 2013 og rek ferðaþjónustufyrirtækið, Deluxe Iceland sem sérhæfir sig í prívat lúxusferðum fyrir kröfuharða viðskiptavini. Ég vel viðmælendur sem vekja áhuga minn og hafa náð góðum árangri á sínum viðskiptaferli í þættina ,“ útskýrir Sigurður.Sigurður Sindri Magnússon spjallar við þekkta viðskiptamenn í hlaðvarpinu Íslenski Draumurinn.Búið er að vinna fjóra þætti og fara þeir í loftið á mánudögum næstu vikur. Vinna við næstu seríu er þegar hafin.Lætur allt flakka Fyrsti gestur Íslenska Draumsins, Sigmar Vilhjálmsson hefur komið víða við á sínum viðskiptaferli. Margir þekkja hann eflaust frá 70 mínútum, Idol Stjörnuleit eða sem einn af fyrri eigendum Hamborgarafabrikkunnar, Keiluhallarinnar, Shake & Pizza og stofnanda sjónvarpsstöðvanna Miklagarðs og Bravó TV. Klippa: Íslenski draumurinn - Sigmar Vilhjálmsson Í þættinum fer hann yfir sinn ævintýralega viðskiptaferil. Allt frá æskuárunum á Egilstöðum og í það að stofna Hamborgarafabrikkuna og reka mest sótta keilusal í Evrópu. Á síðasta ári seldi Sigmar allan sinn hlut í þessum fyrirtækjum en nýlega keypti hann 50% hlut í Hlöllabátum ásamt því að vera að opna nýjan bar í Mosfellsbæ í Nóvember undir nafninu Barion.Næstu þættir af Íslenska Draumnum 28. október verður rætt við Steinþór Jónsson, eiganda Hótels Keflavíkur og Diamond Suites, fyrsta fimm stjörnu hótel landsins. 4. nóvember verður Einar Kristjánsson gestur Íslenska Draumsins, stofnandi og eigandi Alpha Gym og Sport4You í Keflavík. 11. nóvember verður rætt við Magnús Sverrir Þorsteinsson, stofnanda og eiganda Blue Car Rental, einnar stærstu bílaleigu landsins. Hægt er að sjá alla næstu þætti og lesa meira um viðmælendur á síðunni islenskidraumurinn.isÞessi kynning er unnin í samstarfi við Íslenska Drauminn.
Mest lesið Framkvæmdastjóri Olís: „Ekki hleypa henni að græjunum“ Atvinnulíf Ekkert tillit tekið til aðstæðna og ljóst að vöruúrval minnki Viðskipti innlent Brutu lög við söluna á Íslandsbanka og greiða yfir 60 milljónir í sektir Viðskipti innlent Vilja að Musk fái allt að 122 billjónir á næsta áratug Viðskipti erlent Pakkarnir séu langt frá því að vera sambærilegir Viðskipti innlent Segir búið að „dauðadæma Vefjuna“ vegna ummæla Reynis Viðskipti innlent Ellefu prósent þjóðarinnar eiga ísvél Neytendur Síminn má dreifa efni Sýnar Viðskipti innlent Segir félaginu skylt að skipta sér af „sorgarvegferð“ Play Viðskipti innlent Húrra opnar þriðju verslunina á höfuðborgarsvæðinu Viðskipti innlent Fleiri fréttir BMW lækkar verð á nýjustu kynslóð sportjeppans X3 Plug-in Hybrid Gætum orðið fyrsta landið í heiminum til að snúa þróun offitu við Nýr vefur Félags foreldra- og uppeldisfræðinga kominn í loftið „Ekki bara steypa heldur fólk og framtíð“ Framtíð tannlækninga og gervigreindar – kynntu þér Oraxs Sjónvarpsapp Sýnar aðgengilegt í Samsung sjónvörpum „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Sjá meira