Icelandair sendi jákvæða afkomuviðvörun í Kauphöll Samúel Karl Ólason skrifar 28. október 2019 07:10 Forsvarsmenn Icelandair Group gera ekki ráð fyrir MAX-vélunum aftur í rekstur fyrr en í lok febrúar en það þýðir að kostnaður við innleiðingu vélanna í flota félagsins að nýju falli ekki til á þessu ári. Vísir/Vilhelm
Horfur í rekstri Icelandair Group á árinu 2019 eru betri en gert hafði verið ráð fyrir en félagið sendi jákvæða afkomuviðvörun í Kauphöll í gærkvöldi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu þar sem einnig kemur fram að EBIT, afkoma án tillits til greiðslu vaxta og skatta, spá félagsins hafi verið uppfærð úr því að vera neikvæð um 70-90 milljónir dala í það að vera neikvæð um 35-55 milljónir. Þá sé tillit tekið til þegar áætlaðra nettó áhrifa kyrrsetningar Boeing 737 MAX flugvéla. „Nú þegar uppgjör þriðja ársfjórðungs liggur að mestu leyti fyrir, er ljóst að EBIT og nettó afkoma á fjórðungnum er svipuð því sem hún var á sama tíma í fyrra, þrátt fyrir veruleg áhrif kyrrsetningar MAX véla á rekstur félagsins. Þá gerir félagið ráð fyrir betri afkomu á fjórða ársfjórðungi þessa árs en á sama fjórðungi í fyrra,“ segir í tilkynningunni. Forsvarsmenn Icelandair Group gera ekki ráð fyrir MAX-vélunum aftur í rekstur fyrr en í lok febrúar en það þýðir að kostnaður við innleiðingu vélanna í flota félagsins að nýju falli ekki til á þessu ári. Hann flytjist fram á það næsta. Þó hafi gengið vel að draga úr áhrifum af kyrrsetningu vélanna að undanförnu og umbætur í leiðakerfi og bætt tekjustýring hafi skilað árangri. „Í ljósi þessa, eru nettó fjárhagsleg áhrif MAX kyrrsetningarinnar nú metin á um 100-120 milljónir fyrir árið 2019. Sú fjárhæð hefur verið uppfærð með tilliti til fyrrgreindra þátta.“ Icelandair Group mun birta uppgjör fyrir þriðja ársfjórðung eftir lokun markaða á fimmtudaginn.
Fréttir af flugi Icelandair Markaðir Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Viðskipti innlent Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Viðskipti innlent Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Viðskipti innlent Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Viðskipti innlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Fljúga til Færeyja árið um kring Viðskipti innlent Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Atvinnulíf Fleiri fréttir „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Reynir á þolmörk flugmanna og svigrúm Icelandair Voni að allir fái starfið aftur Fótboltastjörnur mokgræða á nikótínpúðum Fljúga daglega til Washington D.C. í sumar Kvarta til Persónuverndar vegna nýrrar gjaldtöku Sektir rafrettukóngs og eiganda söluturns lækkaðar verulega Verkfalli hafnaverkafólks í Sundahöfn aflýst Loka í Kringlunni Skatturinn birtir álagningu í dag Samningsstaða kaupenda hefur styrkst jafnt og þétt Gefa grænt ljós á kaup Nova á Ofar Sjá meira