Bjartviðri í dag en næsta lægð handan við hornið Kristín Ólafsdóttir skrifar 18. október 2019 07:33 Það verður hæglætisveður í dag og víða á morgun en næsta lægð er væntanleg á sunnudag. Vísir/vilhelm
Léttskýjað og bjartviðri, með hægri norðaustanátt, verður á landinu í dag, fyrir utan dálitlar skúrir eða slydduél norðaustantil. Eftir hádegi má svo búast við því að áfram verði léttskýjað í breytilegri átt en að mestu skýjað austanlands. Þá er von á stöku skúrum á Suðurlandi seinnipartinn og í kvöld. Kalt er í veðri en hiti verður á bilinu eitt til sjö stig í dag, hlýjast syðst, að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Á morgun má búast við áframhaldandi hæglætisveðri víðast hvar en skýjað og skúrir sunnan- og vestanlands. Á sunnudag er síðan von á næstu lægð, með suðvestanstrekkingi og rigningu í öllum landshlutum.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ laugardag:Hæg vestanátt og víða bjartviðri, en skýjað um vestanvert landið, og dálítil væta á Suðurlandi. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn.Á sunnudag:Suðvestan 8-13 m/s og rigning, en hægari og þurrt austanlands. Hiti 0 til 7 stig, hlýjast syðst.Á mánudag:Vestlæg átt, 8-13 m/s og rigning í flestum landshlutum. Hiti breystist lítið. Hvessir af norðri seinnipartinn með kólnandi veðri og snjókomu norðantil, fyrst á norðvesturlandi.Á þriðjudag:Útlit fyrir hvassa norðanátt með snjókomu um norðanvert landið, en dregur úr úrkomu eftir hádegi. Þurrt og yfirleitt bjart sunnantil. Frost 1 til 6 stig, en hiti um og yfir frostmarki sunnanlands.Á miðvikudag og fimmtudag:Norðanátt og él norðantil á landinu en léttskýjað á suðurhelmingi landsins. Frost 2 til 7 stig.
Veður Mest lesið Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi Innlent Um 7.000 manns taldir smitaðir af svæsinni niðurgangspest Erlent Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Innlent Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Innlent Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Innlent Slökkviliðsstjóri lætur af störfum eftir ábendingar Innlent „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Innlent Fleiri fréttir Leigubílstjóri stunginn af farþega Ólafur hjá Morgunblaðinu kærður til siðanefndar BÍ Skora á borgaryfirvöld að taka innbrotafaraldurinn föstum tökum Heilbrigðisnefndir verða lagðar niður Sögðu mjólkurfernu kosta 380 krónur en eyddu myndskeiðinu Veita helmingsafslátt af leigunni Íbúafjöldinn fimmfaldast í blíðunni Boðar frekari breytingar „Þó staðan sé ekki góð, þá hefur hún fram að þessu verið ennþá verri“ Fósturbarnakerfið harðlega gagnrýnt og verulega dregið úr umsóknum um alþjóðlega vernd Hafi sýnt stjúpdóttur sinni klám til að réttlæta brot sín Sparkaði í ellefu ára dreng í kjölfar dyraats Fara fram á gæsluvarðhald eftir „stórfellda líkamsárás“ Herjólfur úr leik í fjóra daga þegar nýi mótorinn kemur Ætla að banna samfélagsmiðla fyrir undir fimmtán ára Einn kærður fyrir líkamsárás Rúmlega þriðjungur barna í fóstri á heimilum án leyfis Hundur sem átti að aflífa fluttur úr landi „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ „One love“ til allra í kommentakerfinu Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Bílvelta austan við Hvalnes Hætt að taka við reiðufé vegna innbrotahrinunnnar Tekur upp hanskann fyrir Lite-bjórinn Enn enginn grunaður um spellvirkin við Grafarvogskirkju Ekki falsaðir peningar heldur gervipeningar Sjá meira