Sherwood var aðalþjálfari Tottenham frá desember 2013 til maí 2014 og vinnur nú hjá sjónvarpsstöðinni beIN Sports. Var hann í stúdíóinu til að greina leik Everton og West Ham í dag. Everton vann góðan 2-0 sigur en Gylfi skoraði eins og áður hefur komið fram stórbrotið mark til að tryggja öll þrjú stigin.
„Þetta er ekki færi, hann býr þetta til sjálfur. Komdu honum fyrir fyrir framan markið og hann gerir þetta. Þegar hann klippti knöttinn til baka þá vissi ég að þetta væri inni, hann æfir þetta endalaust. Það þurfti að kalla hann inn eftir æfingar því hann er úti á velli allan liðlangan daginn að æfa sig,“ sagði Sherwood ennfremur.
„Hann er frábær atvinnumaður og frábær leikmaður. Miðað við stöðuna sem Everton er í þá verður Gylfi að vera í byrjunarliðinu og hann vill vera það. Ef hann verður það ekki þá mun hann skoða stöðu sína í janúar,“ sagði Sherwood að lokum.
Gylfi Sigurðsson's match-winning goal was no surprise to his former coach Tim Sherwood!#beINPL#EVEWHUpic.twitter.com/hjuLJbnoyF
— beIN SPORTS (@beINSPORTS) October 19, 2019