Lífið

Þekktur hrekkjalómur stökk á Justin Timberlake fyrir tískusýningu í París

Stefán Árni Pálsson skrifar
Timberlake og Biel voru glæsileg á rauða dreglinum.
Timberlake og Biel voru glæsileg á rauða dreglinum.
Hjónin Justin Timberlake og Jessica Biel voru viðstödd tískusýningu Louis Vuitton í París á dögunum en sýningin var haldin í Louvre-safninu fræga í borginni.

Mjög sérstakt atvik átti sér stað fyrir sýninguna og gerðist það á rauða dreglinum. Þá náði maður að komast inn fyrir öryggissvæðið og stökk á Timberlake og greip utan um annan fót hans.

Sem betur fer var ekki um alvarlegra atvik að ræða og náðu öryggisverðir að fjarlægja manninn á svipstundu en hér að neðan má sjá hvernig þetta atvikaðist.

Um var að ræða nokkuð þekktan hrekkjalóm sem ber nafnið Vitalii Sediuk og er frá Úkraínu. Hann hefur áður náð að hrekkja þekktar Hollywood stjörnur. Hann hefur til að mynda kýlt Brad Pitt og komst að Leonardo DiCaprio á rauða dreglinum.

Einnig hékk hann eitt sinn á fæti leikarans Bradley Cooper á Screen Actors Guild-verðlaunahátíðinni.

 


Tengdar fréttir

Úkraínski stjörnufíkillinn sem kýldi Brad Pitt

Vitalii Sediuk komst í fréttirnar í vikunni eftir að hann kýldi leikarann Brad Pitt. Þetta er þó fjarri því að vera fyrsta atvikið þar sem Vitalii angrar stjörnurnar í Hollywood.

Eurovision-múnarinn stendur frammi fyrir fangelsisvist

Maðurinn, Vitalii Sediuk, er annálaður úkraínskur hrekkjalómur. Hann er nú í haldi lögreglu eftir að hafa truflað atriði úkraínsku söngkonunnar Jamala í tónleikahöllinni í Kænugarði í gærkvöldi. Við honum blasir allt að fimm ára fangelsisvist og há fjársekt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.