Frestun Brexit samþykkt með ákvæði um útgöngusamning May Kjartan Kjartansson skrifar 4. september 2019 19:05 Boris Johnson forsætisráðherra beið ósigur í atkvæðagreiðslu í þinginu um frestun Brexit í kvöld. Hann hefur lagt fram frumvarp um að flýta kosningum. Vísir/EPA
Meirihluti þingmanna á breska þinginu samþykktu frumvarp um að fresta útgöngunni úr Evrópusambandinu nú í kvöld. Á sama tíma var samþykkt breytingartillaga um að leggja útgöngusamning Theresu May, fyrrverandi forsætisráðherra, aftur fyrir þingið en hann var kolfelldur þrívegis fyrr á þessu ári. Frumvarpið var samþykkt með 327 atkvæðum gegn 299 í neðri deild þingsins, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Það bindur hendur Boris Johnson, forsætisráðherra, gagnvart útgöngunni og knýr hann til að leita samþykkis þingsins fyrir útgöngu án samnings eða nýjum útgöngusamningi eða fresta útgöngunni ella. Að óbreyttu eiga Bretar að ganga úr sambandinu 31. október. Nokkurrar ringulreiðar gætti eftir atkvæðagreiðsluna þar sem breytingartillaga um að leggja útgáfu af útgöngusamningi May aftur fyrir þingið. Breskir fjölmiðlar tala um að mögulega hafi sú tillaga verið samþykkt fyrir mistök. Umræður standa nú yfir um tillögu forsætisráðherrans um að boða til kosninga um miðjan október. Til þess þarf stuðning tvo þriðju hluta þingheims. Búist er við að atkvæði verði greidd um frumvarpið um klukkan 20:20. „Ég vil ekki kosningar, almenningur vill ekki kosningar en þessi þingdeild gerir ekki annað kleift,“ sagði Johnson þegar hann mælti fyrir frumvarpinu.Fréttin hefur verið uppfærð.
Bretland Brexit Evrópusambandið Mest lesið „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Innlent Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið Innlent Ósáttur við skilyrðin Erlent „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Innlent Konan komin í leitirnar Innlent Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum Innlent Fleiri fréttir Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Fjögur látin í árekstri skólarútu og lestar Hóta frekari árásum og hvetja sendifulltrúa til að flýja Kænugarð Bandaríkjaher gerði árásir á írönsk skotmörk í dag þrátt fyrir vopnahlé Margrét Þórhildur aftur inn á sjúkrahús Hitamet í maí slegið í Bretlandi Tæplega tuttugu fluttir á sjúkrahús vegna óþefs Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Sjá meira