Svanhvít er menntuð húsgagnasmiður og förðunarfræðingur en vinnur í dag sem leikmunavörður hjá Borgarleikhúsinu.
Fáum að kynnast Svanhvíti Theu aðeins betur.
1. Nafn?
Svanhvít Thea Árnadóttir.
2. Gælunafn eða hliðarsjálf?
Svansa en ég vil bara vera kölluð Svanhvít.
3. Aldur í árum?
Ég er 40 ára gömul.
4. Aldur í anda?
30 ára.
5. Menntun?
Húsgagnasmiður og förðunarfræðingur.
Einnig er ég hálf lærð í háriðn og smá í klæðskurði og hönnun.
6. Við hvað starfar þú í dag?
Leikmunavörður/Propsari hjá Borgarleikhúsinu.
7. Guilty pleasure kvikmynd?
Notebook.
Já, söngvaranum í Duran Duran. Ég átti Duran Duran bók sem ég starði á út í eitt.
9. Talar þú stundum um þig í þriðju persónu?
Ekki svo ég muni eftir og ég ætla að vona ekki, hahhaha!
10. Syngur þú í sturtu?
Nei, það vill enginn heyra mig syngja.
11. Uppáhaldsappið þitt?
Storytel, hlusta á það allan daginn þegar ég er að vinna.
12. Ertu á Tinder?
Nei, ekki í bili. Ég kasta því út reglulega.
13. Hvernig myndir þú lýsa þér í þremur orðum?
Fyndin, góð og lífsglöð.
14. Hvernig myndu vinir þínir lýsa þér í þremur orðum?
Hávær, dugleg og fyndin.
Húmor og lífsgleði er eitthvað sem ég heillast að og fólki sem gerir það sem það elskar.
16. Hvaða persónueiginleikar finnast þér alls ekki heillandi?
Hroki, snobb og þröngsýni er eitthvað sem að ég þoli ekki.
17. Býrðu yfir einhverjum leyndum hæfileikum?
Já, hann er sá að ég get búið til flest allt.
18. Hvaða dýr værir þú ef þú værir dýr?
Api.
19. Ef þú mættir velja einhverja þrjá einstaklinga úr sögunni (lífs eða liðna) til að bjóða í kvöldmat og spjall, hverja myndir þú velja?
Dolly Parton, Ricky Gervais og Trevor Noah.

Borða góðan mat með góðum vinum.
21. Hvað finnst þér leiðinlegast að gera?
Að gera hluti aftur og aftur.
22. Hvernig morgunmat borðar þú?
Hrökkbrauð í vinnunni með góðu samstarfsfólki.
23. Notar þú ilmvatn?
Já, ég nota lavenderolíu og Vervine frá L'Occitane.
24. Draumastefnumótið?
Góður matur og gott vín klikkar aldrei, þá verða allir kátir.
25. Ertu A eða B týpa?
B týpa, alla leið.
Svara játandi.
27. Þegar þú ferð að skemmta þér, á hvaða skemmtistaði ferðu?
Veður og Kaffibarinn eru mínir staðir en byrja mjög oft í mat á Mat Bar.
28. Áttu vandræðalega sögu af stefnumóti?
Já, ég fór einu sinni á stefnumót með gaur sem ég kynntist á netinu. Var ekki alveg viss með það áður en ég fór en sló til. Endaði með því að maðurinn talaði um hvernig fyrrverandi kærastan hans hafði haldið framhjá honum heima hjá þeim og hann hafi komist að því. Hann endaði með því að taka dýnuna þeirra úr íbúðinni og kveikti í henni. Þetta var ekki eina sagan sem hann sagði mér þetta kvöld og hinar voru ekkert skárri. Ég heyrði aldrei í honum eftir þetta.29. Einhver söngtexti sem þú hefur sungið vitlaust?
ALLA! Ég og söngtextar höfum aldrei verið vinir. Kann ekki eitt lag. Hef sungið Bubbalag vitlaust á stóra sviðinu á Þjóðhátíð og var kastað niður af sviðinu með skömm.
30. Hvað horfðir þú á síðast á Netflix?
Aquarius, mjög góðir þættir en bara tvær seríur.
Að lokum spyrjum við Svanhvíti hvernig hún skilgreinir ástina.
Ást er það að hafa gaman og njóta.

