Taldi það eina úrræðið að aka manninn út af veginum Kjartan Kjartansson skrifar 9. september 2019 13:59 Þyrla Landhelgisgæslunnar við Árnes eftir að jeppinn lenti utan vegar. Vísir/Magnús Hlynur
Lögreglumaður á Suðurlandi sem er ákærður fyrir brot í starfi varði ákvörðun sína um að aka jeppa ölvaðs ökumanns út af veginum í Þjórsárdal þegar mál gegn honum var tekið fyrir í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Ölvaði maðurinn hafði meðal annars þvingað lögreglubíl út af veginum og sagðist lögreglumaðurinn telja sitt eina úrræði að stöðva för hans. Jeppi ölvaða mannsins valt og tók kollsteypu utan vegar eftir að lögreglumaðurinn ýtti í þrígang aftan á vinstra horn hans með lögreglubifreið eins og sást á myndbandsupptöku úr lögreglubílnum sem var sýnd við upphaf aðalmeðferðarinnar í morgun. Ökumaðurinn hálsbrotnaði og hlaut skurð á höfði. Lögreglumaðurinn er ákærður fyrir brot í opinberu starfi og fyrir að hafa notað ólögmæta aðferð til að stöðva jeppann. Hann neitar sök.Þvingaði lögreglubíl út af veginum Eftirförin hófst þegar lögreglumenn af Suðurlandi brugðust við útkalli vegna heimilisofbeldis á bænum Laugarási í Biskupstungum snemmkveldis 13. maí í fyrra. Þáverandi eiginkona Ingvars Arnar Karlssonar bar vitni um að hann hefði verið við drykkju í tvo sólahringa og verið ógnandi gagnvart henni og börnum hennar, meðal annars með tveggja tonna gröfu. Lýsingar voru um að maður gengi þar berserksgang. Ingvar Örn ók í burtu á jeppabifreið og hófu lögreglumenn sem mættu honum þá eftirför. Lögreglumaðurinn sem er ákærður var fyrst farþegi í annarri lögreglubifreiðinni sem elti Ingvar Örn en tók við akstrinum þegar ákveðið var að neyða jeppann út af. Hann bar vitni um að jeppinn hefði rásað á veginum en hann svo haldið sig við miðlínu vegarins við upphaf eftirfararinnar. Ingvar Örn hefði hunsað blikkandi ljós lögreglubílanna og köll lögreglumannanna um að hann stöðvaði jeppann. Áhafnir lögreglubílanna tveggja hafi sammælst um að reyna að boxa Ingvar Örn inni með því að staðsetja þá fyrir framan jeppann og við hliðina á honum. Þannig mætti hægja á ferð hans. Þegar lögreglumaðurinn sem er ákærður og félagi hans reyndu að aka fram úr jeppanum sveigði Ingvar Örn inn í hlið lögreglubílsins þannig að báðir bílar enduðu utan vegar. Af myndbandinu sem var sýnt í dómsal virtist það hafa gerst á þó nokkurri ferð. Hafði dómari málsins á orði að ótrúlegt hafi verið að hvorugur bíllinn hefði oltið í það skipti. Aksturslag Ingvars Arnar var skuggalegt að sögn lögreglumannsins. Hann hafi farið nálægt öðrum bifreiðum og ekið óhikað yfir blindhæðir og á öfugum vegarhelmingi. Lögreglumaðurinn lýsti því sem svo að lögreglumönnunum, öðrum ökutækjum og Ingvar Erni sjálfum hafi stafað feykileg hætta af akstrinum.Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, lögmaður lögreglumannsins, mætir í dómsal í héraðsdómi í morgun.Vísir/VilhelmGaf í og hemlaði á víxl á öfugum vegarhelmingi Þegar eltingarleikurinn hafði borist nokkra leið inn Þjórsárdal bar lögreglumaðurinn að varðstjóri á Selfossi hefði ráðlagt þeim að ef þau ætluðu að þvinga jeppann út af væri heppilegur vegarkafli framundan. Þar á eftir væru aðstæður hættulegri vegna fjölda beygja, einbreiðra brúa og umhverfis í kringum veginn. Lögreglumaðurinn sagðist þá hafa tekið ákvörðun um að reyna að sveigja jeppanum út af með því að aka aftan á vinstra horn hans. Varðstjóri hafi ekki gert athugasemd við það. Sá kom einnig fyrir dóminn og bar vitni um að ákvörðunin hafi verið tekin með vitund hans. Hefði hann verið henni andsnúinn hefði hann gefið lögreglumanninum það til kynna. Á upptöku sást að þegar bíll lögreglumannsins sem er ákærður nálgaðist jeppann jók Ingvar Örn hraðann og snarhemlaði á víxl í að minnsta kosti tvígang. Þá var hann á öfugum vegarhelmingi. Lögreglumaðurinn sagði fyrir dómi að þeim hafi virst Ingvar Örn reyna að fá þau aftan á sig af sem mestu afli. Eftir að lögreglumaðurinn nuddaði vinstra horn jeppans í tvígang án þess að það tefði för Ingvar Arnar sagðist hann hafa aukið hraðann til að ná nægu afli til að þvinga hann út af veginum. Við þriðju snertingu bílanna sveigði jeppinn snögglega til vinstri út af veginum þar sem hann valt ofsalega.Vildi ekki valda skaða með aðgerðaleysi Spurður út í lögmæti aðferðarinnar til að stöðva Ingvar Örn sagðist lögreglumaðurinn telja hana hafa verið síðasta hálmstráið. Fram undan hefði verið um fimmtán kílómetra kafli með þrengingum, einbreiðum brúm, blindhæðum og grjótgarði og grýttum árfarvegi upp við veginn. Mat hans hafi byggst á því sem undan væri gengið. Ingvar Örn hefði lítið hald á ökutæki sínu og hann hefði komið tryllingslega fram gagnvart lögreglu og heimilisfólki áður. Hefði hann mætt öðru ökutæki á veginum hefði ekki farið vel. Aldrei hafi komið til greina að veita jeppanum óbeina eftirför. Vísaði lögreglumaðurinn meðal annars til þrefalds banaslyss þar sem ölvaður ökumaður ók framan á bíl sem kom út gagnstæðri átt þegar hann flúði undan lögreglu árið 1995. Lögreglumaðurinn sagðist ekki hafa viljað valda skaða með aðgerðaleysi. „Út frá því taldi ég þetta eina úrræðið,“ sagði lögreglumaðurinn. Hann hefði fengið kynningu og æfingu í þessari aðferð hjá sérsveit lögreglunnar á 9. áratugnum. Hann hefði einu sinni beitt aðferðinni áður en á minni hraða í Reykjavík. Aðferðinni hafi verið beitt oftar hér á landi. Honum hafi aldrei verið kunnugt um að athugasemdir eða ákærur hafi komið til vegna þess. Lögreglumaður sem ók hinni lögreglubifreiðinni bar einnig vitni og sagðist telja ákvörðunina um að aka jeppann út af veginum rétta. Fullyrti hann að enginn hinna lögreglumannanna hefði getað gert eins vel og sá sem er ákærður gerði í að ýta jeppanum út af.Lögreglumaðurinn taldi ákvörðun sína réttmæta og neitaði sök þegar málið gegn honum var þingfest. Myndin er úr safni.Vísir/VilhelmÆtlaði sér ekki að skaða lögreglumenn Ingvar Örn kom fyrir dóminn og neitaði því að hafa ætlað sér að skaða lögreglumennina. Hann hafi verið heltekinn af reiði út í þáverandi eiginkonu sína. Lýsti hann því þegar hann reyndi að losa sig við lögregluna sem tilraunum hans til að „fá frið“. Sagðist hann ekki muna eftir veltunni sérstaklega en atvikum fyrir og eftir hana. Hann hafi hálsbrotnað, lamast og hlotið skurð á hnakkann. Lömunin hafi gengið til baka en hann þjáist enn af afleiðingum veltunnar. Neitaði hann því að hafa ógnað konu sinni og börnum með öðru en orðum. Viðurkenndi hann að hafa rekið hníf í gegnum síma sinn. Fyrrverandi eiginkona hans bar vitni um að hann hefði slökkt á síma hennar áður og verið ógnandi gagnvart henni og börnum hennar. Spurður út í það þegar hann ók utan í lögreglubílinn sem reyndi að komast fram fyrir hann bar Ingvar Örn því við að honum hafi brugðið „svakalega“ og viðbrögðin hafi verið ósjálfráð. Ekki hafi verið meiningin að gera lögreglumönnunum neitt. Féllst hann þó á að lögreglumönnunum sem veittu honum eftirför hefði virst annað. „Auðvitað átti maður að stoppa strax. Það er óskaplega lítið rökrétt við þennan blessaða dag,“ sagði Ingvar Örn. Ingvar Örn var í öðru sæti á lista flokksins Nýs afls í Bláskógabyggð en hann var beðinn um að taka ekki sæti í sveitarstjórn fyrir hönd framboðsins vegna málsins. Mat lögreglumanns í samráði við yfirmann Ólafur Egilsson frá menntasetri lögreglunnar, greindi dómnum frá því að aðferðinni sem lögreglumaðurinn beitti til að stöðva jeppann væri ekki lýst í reglum ríkislögreglustjóra um stöðvun ökutækja frá árinu 2000 en um hana sé fjallað í reglum um ökutæki lögreglunnar frá því á þessu ári. Ekki séu til verklagsreglur fyrir tilfelli sem þessi. Lögreglumenn þurfi að vega og meta hættu, hvaða hagsmunir séu í húfi í samráði við yfirmann. Þeim hafi borið að gera eitthvað og erfitt sé að njörva niður hvað þeir geti gert við aðstæður sem þessar. Fullyrti hann að lögreglumenn hafi verið fræddir um aðferðina og sýnd dæmi um hana í endurmenntun undanfarin ár. Aðferðin sé ekki kennd eins og er en að það hafi staðið til. Verið sé að bíða eftir nýjum verklagsreglum sem eftir eigi að samþykkja.
Bláskógabyggð Lögreglumál Tengdar fréttir Mannlegur harmleikur í Bláskógabyggð Ákvörðun verður tekin í kvöld um framboð manns sem skipar annað sætið á lista Nýs afls í Bláskógabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí. 14. maí 2018 18:45 Lögregla kölluð til vegna ölvaðs manns sem gekk berserksgang með tveggja tonna gröfu við heimili sitt Maðurinn lagði á flótta neyddist lögreglan til að stöðva för hans sem varð til þess að bíllinn hans valt. 13. maí 2018 20:57 Nýtt afl óskar eftir því að Ingvar Örn stigi til hliðar Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýju afli í Bláskógabyggð. 14. maí 2018 21:55 Ákærður lögreglumaður var að elta mann sem gekk berserksgang á gröfu Lögreglumaðurinn er sagður ekki hafa gætt lögmætra aðferða þegar bíllinn var þvingaður af veginum. 31. janúar 2019 16:46 Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Baunað á Jónas Má þvert á flokka Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Fleiri fréttir Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Sjá meira
Mannlegur harmleikur í Bláskógabyggð Ákvörðun verður tekin í kvöld um framboð manns sem skipar annað sætið á lista Nýs afls í Bláskógabyggð fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí. 14. maí 2018 18:45
Lögregla kölluð til vegna ölvaðs manns sem gekk berserksgang með tveggja tonna gröfu við heimili sitt Maðurinn lagði á flótta neyddist lögreglan til að stöðva för hans sem varð til þess að bíllinn hans valt. 13. maí 2018 20:57
Nýtt afl óskar eftir því að Ingvar Örn stigi til hliðar Þetta kemur fram í tilkynningu frá Nýju afli í Bláskógabyggð. 14. maí 2018 21:55
Ákærður lögreglumaður var að elta mann sem gekk berserksgang á gröfu Lögreglumaðurinn er sagður ekki hafa gætt lögmætra aðferða þegar bíllinn var þvingaður af veginum. 31. janúar 2019 16:46