Lífið

Demi Lovato verður með í lokaþáttaröð Will & Grace

Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar
Bandaríska söngkonan birti ljósmynd af sjálfri sér á setti þáttanna í dag.
Bandaríska söngkonan birti ljósmynd af sjálfri sér á setti þáttanna í dag. Vísir/Instagram/Getty
Bandaríska leikkonan Demi Lovato hefur öðlast betra líf eftir að hún lauk meðferð við fíknivanda því nú blómstrar hún sem aldrei fyrr.

Sjá nánar: Edrú og þakklát fyrir að vera á lífi 

Í síðustu viku greindi leikkonan frá því að hún myndi leika íslenska söngkonu í grínmynd Wills Ferrell um söngvakeppnina Eurovision.

Í dag birti Lovato þá ljósmynd af sjálfri sér á Will & Grace settinu með handrit í fanginu en hún mun í það minnsta leika í nokkrum þáttum í síðustu þáttaröðinni af bandarísku gamanþáttunum Will & Grace.

Fjölmiðillinn E News hefur heimildir fyrir því að Demi eigi að leika konu að nafni Jenny sem fléttast inn í líf Wills með óvæntum hætti. Hún á að vera varfærin og lokuð með eindæmum.

Eric McCormack, Debra Messing, Megan Mullally og Sean Hayes munu öll snúa aftur í gamalkunnu hlutverkin en NBC hefur sagt að þáttaröðin, sem telur átján þætti, verði sú síðasta.


Tengdar fréttir

Demi Lovato útskrifuð af sjúkrahúsi

Bandaríska söngkonan Demi Lovato hefur yfirgefið Cedars-Sinai sjúkrahúsið, hvar hún hefur dvalið síðastliðnar vikur eftir að hafa verið lögð þar inn vegna ofneyslu fíkniefna.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.