Í flokki sérútbúinna bíla var slagurinn á milli ríkjandi Íslandsmeistarans Þór Þormars Pálssonar á Thor og Hauks Viðars Einarssonar á Heklu. Þór hafði fjögurra stiga forskot og dugði því að lenda á eftir Hauk, svo lengi sem enginn kæmist á milli þeirra.
Haukur fór vel af stað og var strax kominn á undan eftir fyrstu braut. Í annari braut gerði Þór mistök er hann velti bíl sínum og tapaði tæpum 200 stigum á keppinaut sinn.
„Þetta er bara rétt að byrja, en ég er klárlega að gefa Hauki alltof mikið forskot, og nú eru alltof margir á milli okkar,‘‘ sagði Þór í hádegishléi eftir tvær brautir.
Ótrúlega spennandi keppniKeppni fór aftur af stað klukkan eitt og fékk Þór gullið tækifæri til að komast upp að hlið Hauks í fjórðu braut. Þar komst Haukur ekki upp en Þór tókst ekki að nýta sér mistök andstæðings síns.
Þegar komið var í sjöttu og síðustu braut leiddi Haukur, annar kom Grétar Óli Ingólfsson á Kötlu og Þór þriðji. Haukur hafði því titilinn í höndum sér.
Haukur Viðar fór fyrstur í síðustu brautina og gerði afdrifarík mistök strax í fyrsta barði. Þá velti hann Heklunni og fékk aðeins 90 stig af 350 mögulegum.
Þór kom næstur en þrátt fyrir að komast næstum alla leið var bilið í Hauk svo mikið að Þór komst ekki upp fyrir hann. Örlög Hauks myndu því ráðast þegar að Akureyringurinn Grétar Óli færi í brautina.
Úrslit réðust á síðustu stundu

Heimamaðurinn gerði sér lítið fyrir og fór alla leið og tryggði sér þar með sigurinn við gríðarlegan fögnuð áhorfenda. Það ýtti Hauk niður í annað sætið og Þór hélt þriðja.
Úrslitin þýddu að Þór Þormar Pálsson tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn annað árið í röð. Rétt eins og í fyrra réðust úrslit í síðustu braut í síðustu keppni.
Steingrímur meistari í götubílaflokki

Titilinn var í raun aldrei í hættu þar sem helsti keppinautur Steingríms, Óskar Jónsson, varð frá að hverfa um miðbik keppninnar.
Steingrímur hefur verið að keppa á sama Willys jeppanum síðan 1990 og segir torfæruna alltaf jafn skemmtilega.