Ari Freyr Ísfeld Óskarsson, leikari sem búsettur er í London, fékk símtal frá umboðsmanni sínum á mánudagsmorgun sem spurði hvort Ari væri ekki laus á þriðjudag til að hitta bandaríska leikarann Will Ferrell og hjálpa honum með íslensku og íslenska hreiminn.
„Ég sagði auðvitað strax já enda mikill Will Ferrell aðdáandi,“ segir Ari.
Í framhaldi af símtalinu fékk Ari tölvupóst frá aðstoðarkonu leikstjóra myndarinnar þar sem kom fram að hann myndi hitta Will og Rachel McAdams til að hjálpa þeim með íslensku í lagi sem verður í myndinni.
„Þau voru með eitthvað lag sem var smá bútur af íslensku í og ég var bara að hjálpa þeim með réttan framburð,“ segir Ari sem hitti þau á framleiðsluskrifstofu í London.
Grínaðist með tónhæð Bjarkar
Hann segir þeim hafa gengið misjafnlega að ná íslenska hreimnum. „R-in reyndust þeim erfið og sömuleiðis Þ-hljóðin í íslenskunni.“Í gær hitti ég Will Ferrell og Rachel McAdams til að kenna þeim íslensku.
— Ari Isfeld Oskarsson (@ariisfeld) July 31, 2019
Í dag er ég í svörtum jakkafötum og með byssu sem er búin til pappa og límbandi
Að öðru leyti segir Ari það hafa verið nokkuð óraunverulegt að hitta þessa heimsfrægu leikara. „Sérstaklega Will Ferrell sem maður ólst upp við að sjá í bíó. Mér leið stundum eins og ég væri fastur í einhverri mynd.“
Ari er sjálfur nýútskrifaður leikar og starfar sem slíkur í London og er um þessar mundir við tökur á kvikmynd í borginni.
Verður tekin að hluta upp á Íslandi
Rachel McAdams og Will Ferrell munu leika Íslendinga sem taka þátt í Eurovision-keppninni. Verður myndin tekin upp að hluta á Íslandi en mbl.is greindi frá því í vikunni að tökurnar muni fara fram á Húsavík og að söngkonan sem McAdams leikur eigi að koma frá smábæ á Íslandi. Myndin verður þó að stærstum hluta tekin upp í Pinewood-myndverinu í London.Nokkrir Íslendingar hafa verið ráðnir til að leika í myndinni, þar á meðal Björn Hlynur Haraldsson, Hannes Óli Ágústsson, Ólafur Darri Ólafsson, Nína Dögg Fillipusdóttir og Jóhannes Haukur Jóhannesson sem mun leika mann að nafni Johans.
Ásamt því að leika aðalhlutverk í myndinni skrifar Will Ferrell einnig handrit hennar. Hann er sagður mikill aðdáandi keppninnar en hann og McAdams voru í Tel Aviv í vor til að kynna sér keppnina sem var haldin þar og var Ferrell einnig í Portúgal þar sem keppnin fór fram í fyrra.
Verður Eurovision-myndin framleidd fyrir Netflix.