Alþjóðleg heimildamyndahátíð haldin í fyrsta sinn Iceland Documentary Film Festival kynnir 17. júlí 2019 08:45 Úr heimildamyndinni Honeyland sem fjallar um N-Makedónska hunangsbóndann Hatidze sem vinnur eftir gamla laginu.
Alþjóðlega heimildarmyndahátíðin Iceland Documentary Film Festival hefst í dag. Hátíðin fer fram á Akranesi og stendur fram á sunnudagskvöld. Þetta er fyrsta alþjóðlega heimildamyndahátíðin sem haldin er hér á landi og er dagskráin hin glæsilegasta. Ingibjörg Halldórsdóttir, verkefnastjóri hátíðarinnar, segir sérstaka heimildamyndahátíð löngu hafa verið tímabæra. „Fólk heldur gjarnan að heimildamyndir séu þurrar og einhæfar en þær eru eins ólíkar og þær eru margar. Okkur langar til að sýna fram á það og gefa heimildamyndum það sviðsljós sem þær eiga skilið,“ segir Ingibjörg. Dagskráin er ríkuleg, meðal annars viðamikil barnadagskrá og einnig verða fjölmargir sérviðburðir í gangi yfir hátíðina, bjórsmökkun, lifandi tónlist, ratleikur og „þynnkubíó“! „Þynnkubíóið höldum við á sunnudaginn og sýnum mynd um ekkert, myndina In Praise of Nothing, þar sem tómið eða „ekkert“ segir frá tilveru sinni,“ segir Ingibjörg. „Á dagskránni er einnig miðnætursýning á föstudagskvöldið, myndin Almost Fashionable, en það er heimildamynd um hljómsveitina Travis og þá skemmtilegu staðreind að hún hefur aldrei verið kúl. Á hátíðinni eru þrír keppnisflokkar en sjö myndir eru í aðalkeppnisflokki. Dómnefndina skipa Anna Þóra Steinþórsdóttir kvikmyndagerðakona, Diane Henderson „deputy programmer“ hjá Edinburgh International Film Festival og Jessica Kiang gagnrýnandi en hún skrifar meðal annars í Variety og Rotten Tomatoes.“ Í aðakeppninni eru eftirfarandi myndir: Hin pólsk-íslenska In Touch, Sem vann til verðlauna á IDFA einni stærstu heimildamyndahátíð í Evrópu og dómnefndarverðlaun á Skjaldborg. Haukur framleiðandi myndarinnar verður á sýningunni. N-Makedónska heimildamyndin Honeyland vann þrenn verðlaun á Sundance. Myndin fjallar um hunangsbóndann Hatidze sem vinnur eftir gamla laginu. Hatidze fer sjálf með hunangið á markað og þykir vænt um búin sín. Þegar hún fær nágranna sem taka einnig upp hunangsrækt verður hún í fyrstu glöð að fá félagsskap en það breytist fljótt þegar áherslumunur í ræktuninni verður ljós. Hollenska heimildamyndin Bruce Lee and the Outlaw. Joost, leikstjóri myndarinnar fylgdi ungum götudreng eftir í sex ár. Drengurinn býr í undirgöngum Búkarest í Rúmeníu ásamt "Bruce Lee" , geggjuðum náunga sem heldur "verndarhendi" yfir hópi götudrengja sem í staðinn selja eiturlyf fyrir hann. Myndin er átakaleg en um leið mjög falleg og mannleg og leikstjórinn nær að þræða meðalveg þess að fylgjast með og verða óvænt þátttakandi í eigin mynd. Rússneska heimildamyndin How Big is the Galaxy. Falleg frásögn af hirðingjasamfélagi þar sem börnin fá heimakennslu. Aðalsöguhetjan er 7 ára drengur sem kemur kennaranum og foreldrum oft í vandræði með stórum spurningum. Sænska myndin Hamada, þar sem fylgst er með ungu fólki úr Sahrawi ættbálknum sem hefur verið án lands í 40 ár og er nánast gleymdur. Þau lifa sínu venjubundna lífi í smáu samfélagi, kannski ekkert ólíku smábæjarlífi á Íslandi, og dreymir um að ferðast til fjarlægra landa eignast maka og fá vinnu við áhugamálið sem er bílar. Litháíska heimildamyndin Animus Animalis er ljóðræn nálgun á samband manns og dýra og þá þörf mannsins að halda í það sem er farið. Serbneska myndin 4 Years in 10 Minutes þar sem dagbókarbrotum manns sem kleif Everest er skeytt saman við myndböndin sem hann tók í sömu ferð. Hugleiðing um hvernig raunveruleikinn er ekki alltaf eins og maður óskar sér. Leikstjórar allra myndanna, fyrir utan leikstjóra Honeyland, mæta á hátíðina.Nánari upplýsingar og miðakaup hérÞessi kynning er unnin í samstarfi við Iceland Documentary Film Festival.
Bíó og sjónvarp Mest lesið „Það er alveg hægt að vinna rifrildið, en þá tapar sambandið“ Makamál Ný plata frá Birgi Hákoni: „Ég er ekki lengur þessi gaur nema í tónlistinni“ Lífið „Fimm ár af allskonar og hamingjan er enn hér“ Lífið Tjáir sig í fyrsta sinn um bróðurmissinn Lífið Ein lausn er að liggja hlið við hlið og fróa sér Lífið Göngutúr með umhverfissálfræðingi: „Árás inn í umhverfið“ og vannýttasta horn borgarinnar Lífið Best skipulagða geymsla landsins í glæsihúsi við Laugardalinn Lífið Fagnaði 35 árum í sólinni Lífið Mistök að eyða ekki meiri tíma með börnunum Lífið Púsluðu sig inn í undanúrslit þrátt fyrir hremmingar Lífið Fleiri fréttir MZ Skin – Lúxus húðvörur sem byggja á vísindum og fagurfræði Þetta þurfum við í útihlaupin í vetur Osteostrong á erindi við alla aldurshópa Sprenghlægilegur gamanleikur frumsýndur í október í Þjóðleikhúsinu Fólk öðlast frelsi og hugarró og sumir jafnvel nýtt líf Heitustu haust- og vetrartrendin 2024 Inga Lilý hlaut aðalvinninginn í ár Hefur tekið Nutrilenk í 20 ár og gæti ekki án þess verið Getur hundur hjálpað mér að reima? - Ráðstefna um dýr í starfi með fólki Fallegur golfvöllur á sögulegum slóðum Aldrei haft jafn þykkt hár Eva Ruza skipuleggur húðrútínu sína með L´Oréal Paris Skemmtilegur golfvöllur umkringdur stórkostlegri náttúru Einstök saga sem á erindi við okkur öll Það kom sér vel fyrir Erlu að eiga til pakka af Active Liver! Nýr EM hópur í glæsilegum keppnisbúningi frá Castelli Cycling Líklega best geymda leyndarmálið á meðal kylfinga Ótrúlega öflug meðferð Vinkonukvöldin hjá Elira Beauty farin af stað Krefjandi golfvöllur í óvenjulegri náttúrufegurð Flogið beint til Brno í fyrsta skipti frá Íslandi 15 íslenskar þáttaraðir á Stöð 2 í haust Allt fyrir hlaupið á einum stað Hjólakeppnin Grefillinn nýtur sífellt meiri vinsælda Golfvöllur staðsettur í mikilli náttúruparadís Sólríkar borgarferðir og ljúfar aðventuferðir með Úrval Útsýn Tekur Nutrilenk samhliða Femarelle og mælir hiklaust með Svefninn skiptir máli! Opnuðu kaffihús fyrir hunda og ketti – Einn Puppaccino takk! Skemmtilegur golfvöllur í einstaklega fallegu umhverfi Sjá meira