Skoðun

Úti að aka

Ólöf Skaftadóttir skrifar
Leigubílamarkaður á Íslandi er einokunarbransi. Forsenda þess að fá að keyra leigubíl er að hafa útgefið leyfi frá Samgöngustofu og vera tengdur leigubílastöð sem má aka leigubíl.

Gjaldskrár eru samræmdar og ákveðnar af nefnd, gjaldmælar þurfa að vera löggiltir og bílstjórar þurfa að uppfylla ýmis skilyrði, eins og að vera eigendur eða fyrstu umráðamenn bílsins sem er ekið. Þeir mega ekki hafa verið dæmdir í fangelsi.

Þá er að finna í íslenskum lögum hámarksfjölda útgefinna leyfa til aksturs leigubíla. Fyrir tilstilli EES-samningsins stendur til að breyta þessu í átt til frelsis og afnema fjöldatakmarkanir á slíkum leyfum, sem er ein forsenda þess að farveitur sem við þekkjum úr erlendum borgum á borð við Uber og Lyft geti hafið hér starfsemi. En það þarf meira til.

Þeir sem ferðast hafa með farveitunum þekkja að verðið sem gefið er upp í snjallsímaforritinu er áætlað verð, sem getur tekið smávægilegum breytingum eftir stöðu framboðs og eftirspurnar, vegalengd, tíma og umferð á götum. Þetta er allt mælt með staðsetningarbúnaði forritsins og fellur þar af leiðandi ekki undir þrönga, íslenska skilgreiningu löggilts gjaldmælis né undanþágu ef samið er um fyrir fram ákveðið heildarverð.

Með öðrum orðum nota farveiturnar nútímatækni til að ákvarða verð, neytendum og bílstjórum til hægðarauka. Af óskiljanlegum ástæðum er slíkt bannað á Íslandi og ekki að sjá á nýju frumvarpi samgönguráðherra að standi til að gera breytingu á.

Önnur skilyrði sem atvinnubílstjórum eru sett eru undarleg. Af hverju má maður sem hefur á lífsleiðinni farið út af sporinu og tekið út sína refsingu ekki starfa sem leigubílstjóri? Af hverju þarf bílstjóri að eiga bifreið sína ef hann vill bara keyra á mánudögum? Af hverju má eingöngu nota leigubifreið til leigubílaaksturs?

Að minnsta kosti er ekki verið að hugsa um neytandann. Með farveitum má velja sér fararskjóta; rafmagnsbíl eða -hjól, stærri bíl fyrir farangur eða glæsibifreið ef á að gera sér dagamun. Kostnaður er nokkurn veginn ljós fyrir fram og greiðsla innheimt í samræmi við gæði bíls, lengd ferðar og tíma dags. Ókunnugir geta deilt leigubíl kjósi þeir svo og skipt kostnaði í gegnum símann. Farþegar og bílstjórar gefa svo hvrr öðrum einkunn, svo samskipti bílstjórans og kúnnans eru í flestum tilfellum til fyrirmyndar.

Í borg eins og Reykjavík er kominn tími á frjálsa leigubíla. Fjölbreyttari samgöngur hljóta að vera takmarkið í borg þar sem samgönguvandinn er öllum ljós. Meira að segja væri hægt að innleiða græna hvata í starfsemina; rafmagnsvæða leigubílaflotann.

Hvað sem öllum bollaleggingum líður hljóta allir að sjá að leigubílaþjónusta verður að endingu frjáls á Íslandi. Þetta er ekki spurning um hvort heldur hvenær menn sjá ljósið.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×