Hitinn gæti farið í 22 stig Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. júní 2019 07:18 Hitaspá Veðurstofunnar fyrir morgundaginn klukkan 15. Spáð er um og yfir 20 stiga hita á austanverðu landinu. veðurstofa íslands
Það verður ekki mjög sólríkt sunnan og vestan til á landinu næstu daga. Sólin mun aftur á móti láta sjá sig austan lands og þar gæti hitinn farið í 22 stig að því er fram kemur í veðurspá á vef Veðurstofu Íslands. Í hugleiðingum veðurfræðings segir að í dag verði fremur hæg suðvestanátt, að mestu skýjað og þurrt. Hitinn á bilinu 9 til 15 stig en víða bjart austan til á landinu þar sem hitinn gæti náð 22 stigum. Það verður svo áfram suðvestanátt næstu daga með svipuðum hitatölum og skýjafari þótt heldur muni bæta í vind á morgun með dálítilli vætu um vestanvert landið. „Það safnast tæplega margar sólskinsstundir í sarpinn næstu daga, en þrátt fyrir þungbúið veður er uppsafnaða úrkomumagnið heldur ekki mikið. Annað er þó uppi á tengingum um austan til á landinu þar sem er útlit fyrir þurrt, bjart og hlýtt veður,“ segir í hugleiðingunum.Veðurhorfur á landinu:Suðvestan 3-10 m/s. Skýjað og úrkomulítið, en bjartviðri austan til á landinu. Suðvestan 8-15 á morgun, hvassast um landið norðvestan vert. Skýjað og dálítil væta, en áfram þurrt austanlands. Hiti 9 til 20 stig, hlýjast austan til.Á þriðjudag og miðvikudag:Vestan 8-15 m/s, en hægari vindur austast á landinu. Dálítil væta af og til vestan til á landinu, en léttskýjað á austur helmingi landsins. Hiti 8 til 22 stig, svalast vestast en hlýjast á Suðausturlandi.Á fimmtudag:Suðvestan 5-10 m/s og dálítíl rigning, en áfram þurrt og bjart austantil á landinu. Hiti 10 til 21 stig, hlýjast austan til.Á föstudag:Sunnan 5-10 og víða rigning, en úrkomulítið norðaustan til. Hiti 10 til 16 stig.Á laugardag:Útlit fyrir austlæga átt og dálitla vætu um land allt. Hiti 11 til 16 stig.Á sunnudag:Líkur á norðlægri átt og rigningu norðan til en skúrum syðra. Kólnar í veðri.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira