Bíó og sjónvarp

Framhald Gladiator gerist 25 árum eftir fyrstu myndina

Andri Eysteinsson skrifar
Russell Crowe var stórkostlegur í hlutverki sínu sem skylmingaþrællinn Maximus í myndinni frá 2000.
Russell Crowe var stórkostlegur í hlutverki sínu sem skylmingaþrællinn Maximus í myndinni frá 2000. Getty/ArchivePhotos
Undirbúningur fyrir framhald stórmyndarinnar Gladiator um skylmingaþrælinn Maximus Decimus Meridius, sem kom út árið 2000 í leikstjórn Ridley Scott, er hafinn en mikil leynd ríkir yfir ferlinu.

Scott staðfesti á síðasta ári orðróma þess efnis að framhaldsmynd væri væntanleg, en ekkert heyrðist frekar fyrr en að framleiðendur Men In Black: International, Walter F. Parke og Laurie MacDonald sögðust vera í framleiðsluteymi Gladiator 2.

Í viðtali vegna Men in Black myndarinnar sögðu MacDonald og Parkes að þeir væru að vinna með Ridley Scott og stórkostlegum handritshöfundi, Peter Craig. Þá sagði Parkes að þráðurinn yrði tekinn upp 25 árum eftir fyrri myndina.

Orðrómar hafa verið uppi um að myndin muni snúast að mestu leyti um Lucius, son Lucillu og frænda Kommódusar Rómarkeisara.

Ekki er ljóst hvort einhverjir leikarar úr fyrri myndinni muni snúa aftur í hlutverkum sínum.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.