Hagstæðustu vextir í sögu lýðveldisins Ari Brynjólfsson skrifar 14. júní 2019 06:15 Ráðherra telur markaðsaðstæður hagstæðar. Fréttablaðið/Sigtryggur Ari
Ríkissjóður Íslands gaf í gær út skuldabréf að fjárhæð 500 milljónir evra, eða að jafnvirði um 71 milljarðs króna. Um er að ræða skuldabréf á hagstæðustu vöxtum í sögu íslenska lýðveldisins. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallarinnar að skuldabréfin bera 0,1% fasta vexti og eru gefin út til 5 ára á ávöxtunarkröfunni 0,122%. Fjárfestar sýndu útgáfunni mikinn áhuga og nam eftirspurn um 2,5 milljörðum evra eða ríflega fimmfaldri fjárhæð útgáfunnar. Fjárfestahópurinn samanstendur af seðlabönkum og öðrum fagfjárfestum, aðallega frá Evrópu. Umsjón útgáfunnar var í höndum Barclays, JP Morgan, Morgan Stanley og Nomura. „Þessi útgáfa er staðfesting á þeirri viðurkenningu og trausti á þeim árangri sem við höfum náð í ríkisfjármálum og stjórn efnahagsmála á síðustu árum, en ríkissjóður hefur aldrei tekið lán á hagstæðari vöxtum,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. „Útgáfan nú er liður í að framfylgja langtímastefnu í lánamálum. Þetta er mikilvægur þáttur í því að bæta markaðsaðgengi innlendra aðila að erlendum lánsfjármörkuðum til lengri tíma og að stórum og fjölbreyttum hópi fjárfesta. Markaðsaðstæður eru hagstæðar um þessar mundir og það er ánægjulegt að festa þessi hagstæðu kjör til næstu fimm ára.“
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Matorka í Grindavík gjaldþrota Viðskipti innlent Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Viðskipti innlent Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Fleiri fréttir Arion segir unnið að lausn vegna hótelturnsins Matorka í Grindavík gjaldþrota Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Sjá meira