Segir mjög veika von um að Jón Þröstur sé á lífi Sighvatur Jónsson skrifar 16. júní 2019 19:15
Bróðir Jóns Þrastar Jónssonar sem hvarf á dularfullan hátt á Írlandi fyrir rúmum fjórum mánuðum segir vonina um að Jón Þröstur sé á lífi mjög veika. Engar nýjar upplýsingar hafi komið fram í málinu. Hann segir einhvers konar málalok nauðsynleg til að geta horft fram á veginn og verið til staðar fyrir sína nánustu. Fyrir rúmum fjórum mánuðum hvarf Jón Þröstur sporlaust í Dublin. Síðast sást til hans á gangi nærri hótelinu sem hann gist á ásamt kærustu sinni. Davíð Karl bróðir Jóns Þrastar segir að annar bróðir sinn sé í Dublin þar sem hann hafi komið fram í fjölmiðlum og verið í sambandi við lögreglu. Engar nýjar vísbendingar hafi komið fram. „Þetta er ekki sama orka og mannafli sem fer í málið en engu að síður liggur það inn á borði hjá þeim og ef ábendingar berast sinna þeir þeim,“ segir Davíð.Lifir þú enn í voninni um að hann finnist og sé á lífi?„Ég auðvitað lifi í voninni. Ég vona það besta en vonin er mjög veik. Mín helsta von er að það komi einhver málalok. Ég er ekkert voðalega vongóður nei, alls ekki. Enda er langt um liðið og ekkert að frétta. En ég vona innilega fjölskyldunnar vegna að þetta leysist samt sem áður. Ég er eiginlega búinn að sætta mig við slæma niðurstöðu úr þessu máli.“Davíð Karl ásamt Katrínu kærustu sinni og tveimur börnum þeirra.Vísir/BjarniDavíð er opinskár um líðan sína og annarra fjölskyldumeðlima. Fólk takist mismunandi á við áfalllið, óvissuna og sorgina. „Ég reyni að heiðra minningu hans og halda henni á lofti og hugsa hlýtt til hans. Ég reyni að tækla þetta þannig eins og hann sé ekki meðal vor ennþá, en auðvitað vona það besta.“Er erfitt að segja þetta?„Það er mjög erfitt. Ég veit ekki nákvæmlega hvernig ég á að koma þessu frá mér snyrtilega. Mér hefur liðið gífurlega illa og þetta hefur legið mjög þungt á mér. Ég er viss um að það á við alla sem standa honum næst. Fyrir mitt leyti varð ég einhvern veginn að fá málalok til þess að geta verið til staðar, sérstaklega fyrir börnin mín og Katrínu kærustuna mína. Þetta var svona sú nálgun sem ég tók á málið eins og staðan er núna.“Móðir Jóns Þrastar sagði í viðtali við DV á dögunum að hún teldi að Jón Þröstur hafi tekið afdrifaríka ákvörðun og einhver búi yfir meiri upplýsingum en komið hafi fram. „Auðvitað er á reiki hvort hann hafi talað við einhvern kvöldið áður og annað. Það getur auðvitað skipt máli. En ef hann hefur tekið þessa afdrifaríku ákvörðun að taka eigið líf eru meiri líkur á að aðrir hlutir hafi haft eitthvað með það að gera,“ segir Davíð. Hann telur ekki að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. „Þá er auðvitað ekki margt sem kemur til greina, að hann hafi mögulega látið sig hverfa eða tekið eigið líf. Ég tel ekki að hann hafi látið sig hverfa, mér finnst það mjög ólíklegt.“Í spilaranum hér að neðan má horfa á lengri útgáfu viðtalsins við Davíð Karl.
Leitin að Jóni Þresti Tengdar fréttir Líkurnar á því að Jón Þröstur finnist á lífi fari minnkandi með degi hverjum Leit fjölskyldunnar að Jóni Þresti, sem hvarf sporlaust í Dyflinni í febrúar síðastliðnum, hefur enn engan árangur borið. 17. apríl 2019 15:01 Getur ekki leyft sér að syrgja og heldur áfram að leita bróður síns Ekkert hefur spurst til Jóns Þrastar síðan hann gekk út af hóteli og út á götur Dyflinnar að morgni laugardagsins 9. febrúar. Jón Þröstur verður 42 ára á þessu ári og er fjögurra barna faðir. Davíð segist ekkert hafa sofið fyrstu vikurnar eftir að Jón Þröstur hvarf. 21. mars 2019 14:13 Fjölskylda Jóns fær særandi skilaboð frá fjölda miðla Frá þessu segir fjölskyldan á Facebook-síðu sem tileinkuð er leitinni að Jóni Þresti. 9. apríl 2019 11:53 Mest lesið Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Innlent „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði Innlent Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Innlent Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Innlent „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Innlent „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Innlent Fleiri fréttir „Farið að líða mjög illa á sálinni að horfa á lík og sundurtætta líkama“ Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Skoða hvernig brotthvarfi Bandaríkjanna úr hafrannsóknum verður mætt Rúmlega átján þúsund skiluðu ekki framtali „Það vegast þarna á mjög erfið sjónarmið“ Rafvarnarvopn kom við sögu þar sem tilkynnandi um brot var handtekinn Vaxtaplanið sé tímaskekkja Bólga eftir bílbeltið leiddi til sýknu Skuldbundu sig í fjögur ár en farin eftir átján mánuði „Það þarf nú ansi mikið að ganga upp“ Þurfi frekar að gera meira fyrir konurnar heldur en að skrímslavæða þær Aðalsteinn hleypur í skarðið Sjá meira
Líkurnar á því að Jón Þröstur finnist á lífi fari minnkandi með degi hverjum Leit fjölskyldunnar að Jóni Þresti, sem hvarf sporlaust í Dyflinni í febrúar síðastliðnum, hefur enn engan árangur borið. 17. apríl 2019 15:01
Getur ekki leyft sér að syrgja og heldur áfram að leita bróður síns Ekkert hefur spurst til Jóns Þrastar síðan hann gekk út af hóteli og út á götur Dyflinnar að morgni laugardagsins 9. febrúar. Jón Þröstur verður 42 ára á þessu ári og er fjögurra barna faðir. Davíð segist ekkert hafa sofið fyrstu vikurnar eftir að Jón Þröstur hvarf. 21. mars 2019 14:13
Fjölskylda Jóns fær særandi skilaboð frá fjölda miðla Frá þessu segir fjölskyldan á Facebook-síðu sem tileinkuð er leitinni að Jóni Þresti. 9. apríl 2019 11:53