Farið að kólna og möguleiki á snjókomu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 18. júní 2019 07:45 Það eru ekki margar tveggja stafa tölur á kortinu í dag. veðurstofa íslands
Nú er farið að kólna lítillega á landinu og verður hitinn ekki mikið yfir frostmarki að næturlagi á Norðausturlandi að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þá verður úrkoma mögulega í formi slyddu eða snjókomu á heiðum norðaustan til í dag en annars eru líkur á skúrum um mest allt land nema á vestanverðu landinu þar sem verður þurrt og bjart. Þá er ekki að sjá neina úrkomu í kortunum á vestanverðu landinu en þar hafa verið miklir þurrkar og óvissustigi verið lýst yfir vegna hættu á gróðureldum. „Útlit vikunnar er keimlíkt, ekki jafn mikið um tveggja stafa hitatölur og hefur verið, úrkoma fyrir norðan og austan en þurrt vestan til. Helgin lítur ágætlega út. Bjartara veður á mest öllu landinu, hægur vindur og hiti 10 til 18 stig, líka á Norður- og Austurlandi,“ segir á vef Veðurstofunnar.Veðurhorfur á landinu:Norðlæg átt 5-13 m/s, hvassast vestan til. Skýjað og skúrir um mest allt land en þurrt að kalla og bjart að mestu um landið vestanvert. Léttir til á Suðurlandi þegar líður á daginn. Heldur hægari vindur á morgun. Hiti 4 til 14 stig, svalast fyrir norðan.Á miðvikudag og fimmtudag:Norðan 5-10 m/s og lítilsháttar súld eða rigning norðan- og austanlands og hiti 2 til 9 stig, en annars skýjað með köflum, yfirleitt þurrt og hiti 7 til 13 stig.Á föstudag (sumarsólstöður):Norðlæg átt 5-10 m/s. Rigning norðaustan- og austan til á landinu, en annars skýjað með köflum og þurrt. Hiti 6 til 15 stig, hlýjast á Suðurlandi.Á laugardag:Fremur hæg vestlæg eða breytilega átt. Skýjað með köflum og stöku síðdegisskúrir. Hlýnar í veðri.Á sunnudag og mánudag:Útlit fyrir hæga suðvestlæga eða breytilega átt. Bjart með köflum og hiti 10 til 18 stig á öllu landinu.
Veður Mest lesið „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Innlent Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Innlent Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Innlent Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Erlent Óveður gengur yfir landið Innlent Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Innlent Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Innlent Fleiri fréttir Vélmenni útbúa nú matarbakka og ferja í flugvélarnar Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Verðkröfur stjórnvalda hafi fælt lyfjaframleiðendur frá Valhöll skrefi nær því að verða níutíu herbergja hótel Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Skildu þýfið eftir á vettvangi í stolnum bíl Vandinn heimatilbúinn og vill sleppistæði Með gaddakúlu og sprautunálakylfu „Það væri mjög miður“ Litli spítalinn án samnings og ráðherra sér ekkert svigrúm Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Óþolandi leyndarhyggja ríki um niðurstöður PISA-prófa Vill skýr viðbrögð við trassaskap í losunarmálum í lög Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Aðeins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann ofbeldi Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni „Það andar ekki köldu á milli mín og neinna annarra“ Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Sjá meira