Ekki vitað nákvæmlega hvað hrjáir Steven Lennon Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 2. júní 2019 14:00 Skotanum hefur gengið erfiðlega að hrista af sér meiðslin en skilar góðu framlagi þær fáu mínútur sem hann getur spilað vísir/vilhelm
Ólafur Kristjánsson segir FH-inga ekki vita nákvæmlega hvað það er sem hrjáir Steven Lennon, en hann hefur ekki byrjað leik með FH í sumar. FH hefur skapað sér skemmtilega hefð þar sem þeir halda fréttamannafundi fyrir leiki sína í Pepsi Max deildinni þar sem Ólafur Kristjánsson situr fyrir svörum. Fimleikafélagið á stórleik í dag gegn Breiðabliki á Kópavogsvelli. Eitt af því sem rætt var á fundinum í dag var ástand Steven Lennon, en Skotinn öflugi hefur verið að glíma við meiðsli og aðeins getað komið inn af bekknum þegar líða fer á leikina til þessa. „Við höfum ekki alveg vitað hvað er að hrjá hann og þá hefur maður kannski farið aðeins varlega í mínúturnar sem hann fær,“ sagði FH. „Við bindum vonir við það að þegar við komum aftur eftir þetta hálfs mánaðar hlé sem verður núna að hann verði miklu, miklu nær því að spila 90 mínútur. Við sjáum hvernig líkaminn bregst við eftir þessa leiki sem hann hefur verið að spila.“ Lennon hefur tekið þátt í þremur af sex leikjum FH í deildinni til þessa og skorað eitt mark. Hann gerði 9 mörk í 21 leik síðasta sumar. „Auðvitað verður það frábært ef Lennon getur orðið 90 mínútna maður. Hann hefur verið virkilega drjúgur í þessum fáu mínútum sem hann hefur fengið. Við vitum það að ef hann er 90 mínútna maður þá verðum við enn sterkari,“ sagði Ólafur Kristjánsson. Leikur Breiðabliks og FH hefst klukkan 17:00 og verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti Vann erfitt utanvegahlaup þrátt fyrir brákað rifbein Sport Lygilegur uppgangur: „Besta botnlangaaðgerð í sögunni“ Fótbolti Vondur dagur varð enn verri fyrir fyrirliða Man. United Enski boltinn Heims- og Ólympíumeistari í maraþoni féll á lyfjaprófi Sport Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Íslenski boltinn Dagskráin: Lokaumferð Bestu með Doc Zone og Messan í einum pakka Sport Verður Arsenal í vandræðum í fjarveru Saka? Enski boltinn Komu lykilleikmanni fljótt til varnar Körfubolti Fleiri fréttir Markahæsta umferð sögunnar Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Leik lokið: Víkingur-Fram 2-2 | Víkingar rétt sluppu við súra sigurhátíð Óskar Hrafn: „Krefst þess að menn séu ekki saddir“ Lárus Orri hættur með ÍA og Heimir sagður á leiðinni Uppgjörið: KA-ÍBV 5-1 | KA fallið þrátt fyrir stórsigur Hólmar Örn Eyjólfsson: „Horfi til baka og er bara stoltur“ Jóhannes Karl sér bjarta tíma fram undan: „Það var eitthvað að mótast, kjarni í liðinu“ Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“ Uppgjörið: Stjarnan – Valur 6-0 | Burstuðu Val og unnu Forsetabikarinn Uppgjörið: KR-Breiðablik 8-3 | Ellefu mörk og markamet í Vesturbænum Uppgjörið: ÍA - Keflavík 4-4 | Jafnt eftir markaregn í Akraneshöllinni Sjáðu vítið sem Þórsarar vildu fá Uppgjörið: FH-Þór 1-2 | Þórsarar fögnuðu innilega eftir dramatískan sigur í Laugardalnum Leikur FH og Þórs færður vegna frosts Sjáðu fimmu Hrafnhildar Ásu í lokaumferðinni FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Sjá meira
Siggi Höskulds eftir dramatíska björgun Þórs: „Fótbolti er miklu meira en eitthvað xG og kjaftæði“