Körfubolti

Nýtt met Curry dugði ekki til gegn Toronto sem tók forystuna á ný

Anton Ingi Leifsson skrifar
Curry vonsvikinn í leiknum í nótt.
Curry vonsvikinn í leiknum í nótt. vísir/getty
Stephen Curry lék á als oddi í nótt og skoraði 47 stig en það dugði ekki til er Golden State Warriors tapaði 123-109 fyrir Toronto Raptors í þriðja leik úrslitaeinvígisins í NBA-deildinni.

Klay Thompson var á meiðslalistanum hjá Golden State Warriors og það munaði um minna en hann er meiddur aftan í læri. Meistararnir voru því án hans í nótt.

Það var mikið skorað í leiknum í nótt og ljóst frá upphafi að áhorfendur myndu fá mikið fyrir peninginn. Toronto var 36-29 yfir eftir fyrsta leikhlutann og leiddi svo í hálfleik 60-52.





Toronto hélt tökunum á leiknum í síðari hálfleik og þrátt fyrir áhlaup ríkjandi meistara þá létu gestirnir sigurinn ekki af hendi og eru komnir í 2-1 í einvíginu.

Stephen Curry var bestur í liði Golden State. Hann bætti met sitt yfir flest stig skoruð í einum leik í úrslitakeppni og gerði 47 stig en gamla met hans var 44. Að auki tók hann átta fráköst og gaf sjö stoðsendingar.

Kawhi Leonard var stigahæstur í liði Toronto með 30 stig en Toronto-menn voru sjóðheitir fyrir utan þriggja stiga línuna. Þeir hentu sautján þristum niður sem er það mesta í úrslitarimmu síðan 9. júní 2017 er Cleveland hitti 24 þristum.





Næsti leikur liðanna fer fram í nótt.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×