Mjög hlýtt vor að baki þar sem mestu munar um óvenju hlýjan apríl Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 6. júní 2019 08:30 Það má með sanni segja að veðrið hafi leikið við borgarbúa undanfarnar vikur. vísir/vilhelm
Það munaði mestu um óvenju hlýjan apríl á mjög hlýju vori (apríl og maí). Hitinn var vel yfir meðallagi áranna 1961 til 1990 og síðustu tíu ára. Var hann 2,5 stigum yfir í Reykjavík, 2,8 stigum yfir á Akureyri, 2,7 stigum yfir í Stykkishólm og tveimur stigum yfir á Egilsstöðum. Vorið var það næsthlýjasta á Akureyri, í Reykjavík og Stykkishólmi og það níunda hlýjasta á Egilsstöðum. Þetta kemur fram í yfirliti Veðurstofu Íslands um tíðarfar í maí. Þar segir að maí hafi verið nokkuð hlýr og sólríkur um vestanvert landið á meðan það hafi verið kaldara norðan og austan til. Þurrt var um land allt, þótt eitthvað hafi snjóað um landið norðan og austanvert. Jörð varð þó aldrei alhvít á Akureyri og alautt var í Reykjavík allan mánuðinn. Norðaustlægar áttir voru ríkjandi og þá var loftþrýstingur óvenju hár í mánuðinum. Það var síðan sólríkt suðvestanlands. Þannig mældust sólskinsstundir í Reykjavík 236,8 sem er 44,8 stundum yfir meðallagi áranna 1961 til 1990. Á Akureyri mældust sólskinsstundirnar 157,4 sem er sextán stundum færri en að meðaltali 1961 til 1990. Nánari upplýsingar um tíðarfar í maí má nálgast á vef Veðurstofunnar.
Veður Mest lesið Ása hyggst selja húsið og flytur ásamt börnum sínum Erlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Innlent Frægasti köttur landsins týndur Innlent Ráku háttsettan herforingja sem sakaður var um lygar Erlent Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Innlent Sundhnúksgígaröðin að verða búin Innlent Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Innlent Engar ruslatunnur í Grindavík Innlent Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Innlent Fleiri fréttir Fyrstu lotu læknaverkfalls aflýst Á bak við auglýsingarnar um Dag en skráður í Samfylkinguna Ræktar banana í Hafnarfirði með góðum árangri Frægasti köttur landsins týndur Enginn drukkinn jólasveinn í jólaþorpi Hafnarfjarðar Engar ruslatunnur í Grindavík Kapphlaup við tímann í Karphúsinu og eggjaskortur í aðdraganda jóla Í símanum undir stýri og bíllinn mikið skemmdur Læknar á lokastigi og nýr taktur hjá kennurum Biskup fagnar hækkun sóknargjalda Sundhnúksgígaröðin að verða búin Vinstrið muni bera sigur úr býtum að öllu óbreyttu Breyting á eldgosinu og stór dagur í Karphúsinu Ögurstund runnin upp í Karphúsinu Fjölskyldan brást vel við nýju húðflúri þingmannsins Kæla öll „hraunaugu“ og loka þeim Minni virkni í miðgígnum Vextir og kosningar í Sprengisandi Réttindalausir stútar á ferðinni Engar sýnilegar breytingar á hraunflæði eða krafti Ók á ljósastaur við Grensásveg Eldur kviknaði í bíl í Mosfellsbæ Læknar fara þokkalega bjartsýnir inn í morgundaginn Viðreisn stærst samkvæmt nýrri kosningaspá en mjótt á munum Sjálfstæðisflokkurinn hafi lagt til niðurskurð á hverju ári Hefur gefið Landgræðslunni 26 milljónir króna í formi fræja Mikilvægt að Bláa lónið geti opnað sem fyrst Hvetja íbúa Suðurnesja til að spara heita vatnið Varnaraðgerðir í Svartsengi og umdeild yfirhalning hjá Jaguar Ísland virðir handtökuskipan á hendur Netanjahú Sjá meira