Dagbjartur og Ragnhildur unnu Síma-mótið Anton Ingi Leifsson skrifar 9. júní 2019 16:14 Ragnhildur og Dagbjartur stóðu uppi sem sigurvegarar. MYND/GSÍMYNDIR
Dagbjartur Sigurbrandsson, úr GR, og Ragnhildur Kristinsdóttir, einnig úr GR, stóðu uppi sem sigurvegarar á Síma-mótinu á Hlíðavelli en mótið fór fram um helgina. Leiknar voru 54 holur um helgina en 36 holur voru leiknar í gær og átján í dag en færri komust að mótinu en vildu. Alls voru 84 keppendur á mótinu um helgina. Dagbjartur leiddi eftir fyrsta hringinn og hann stóð einnig uppi sem sigurvegari eftir hringina þrjá en hann endaði á sex höggum undir pari. Í öðru sætinu var Andri Þór Björnsson á tveimur höggum undir pari svo sigur Dagbjartar var öruggur. Kristófer Karl Karlsson, á heimavelli, endaði í þriðja sætinu á einu höggi undir pari. Í kvennaflokki var það Ragnhildur Kristinsdóttir sem tók gullið. Eftir hring eitt var Ragnhildur einnig í forystunni en hún endaði á tíu höggum yfir pari. Í öðru sæti var samherji hennar úr GR, Saga Traustadóttir, en hún endaði á átján höggum yfir pari svo sigur Ragnhildar var aldrei í hættu. Í þriðja sæti var Helga Kristín Einarsdóttir, úr GK.
Golf Mest lesið Þema í tapleikjum Liverpool á þessu ári Enski boltinn Þorsteinn Leó með sigurmark á lokasekúndunum Handbolti Efins um að ráða Carrick til frambúðar: „Maður er brenndur af fyrri tíð“ Enski boltinn „Ég held ég sé komin með nóg af karlmönnum í bili“ Sport Tapaði hlaupinu af því að forystubíllinn lét hana hlaupa kolranga leið Sport Mark í uppbótartíma tryggði botnliðinu sigur gegn Liverpool Enski boltinn Mark í framlengingu framlengir bikarævintýri Port Vale Enski boltinn Keypti Cucurella af því að Man City vildi hann Enski boltinn Börsungar úr leik þrátt fyrir öruggan sigur í kvöld Fótbolti Segir Almari og félögum sýnd hræðileg vanvirðing Körfubolti Fleiri fréttir Sakar mótaröðina um að kúga kylfinga Vildi vinna fyrir dóttur sína en klúðraði því algjörlega Logi fékk örn eftir að hafa slegið beint í holu af 76 metra færi Gunnlaugur semur við umboðsskrifstofu Schefflers Atvinnukylfingur féll niður um lyftustokk Rory McIlroy: „Fjögur risamót er alveg nóg“ LIV fær heimslistastig þótt mótaröðin uppfylli ekki skilyrði Sjá meira