Dybala segir orð bróður síns bull: Ekki á leið til United Anton Ingi Leifsson skrifar 25. maí 2019 09:00 Dybala fagnar ítalska meistaratitlinum. vísir/getty
Paulo Dybala, leikmaður Juventus, hefur neitað því að hann sé á förum frá Juventus eftir að bróðir hans ýjaði að því að hann gæti verið á förum frá ítölsku meisturum. Gustavo Dybala, bróðir Paulo, sagði í síðustu viku að Inter Milan og Manchester United gætu verið líklegur áfangastaður Paulo en hann hefur nú tjáð sig um ummæli bróður síns. „Bróðir minn talaði fyrir sjálfan sig og ég talaði við félagið og Fabio Paratico. Þeir vita hvað ég er að hugsa,“ sagði Dybala en Paratico er yfirmaður knattspyrnumála hjá Juventus. „Ég vil vera áfram hjá Juventus á næstu leiktíð. Ég vil halda áfram að spila hérna. Ég er ánægður og ber treyju Juventus með stolti. Juventus gerir upp við sig og svo byggjum við upp liðið í kringum þjálfarann sem kemur.“ Massimiliano Allegri er hættur sem þjálfari Juventus og enn er ekki víst hver tekur við liðinu. Dybala vill að sóknarbolti verði við völd á næsta tímabili en að titlarnir haldi einnig áfram að skila sér í hús. „Félagið veit enn ekki hver tekur við en við vonumst eftir því að það verði sterkur karakter sem leiðir okkur í að vinna allt,“ sagði Dybala sem kvaddi Allegri með söknuði. „Ég kvaddi Allegri og þakkaði honum því hann er eini þjálfarinn sem ég hafði hér. Við erum allir þakklátir honum fyrir hvað hann gerði fyrir félagið.“ „Félagið vill sjá okkur spila sóknarbolta en það mikilvægasta er að vinna leikina. Félagið hugsar þannig og leikmennirnir líka,“ sagði Dybala.
Fótbolti Mest lesið Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa Fótbolti FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Fótbolti Dregur Aþenu úr keppni og sakar borgina um valdníðslu Körfubolti Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Fótbolti Hissa á útspili Haalands Fótbolti McGregor entist aðeins í 69 sekúndur Sport Haaland eldri hraunar yfir dómarana Fótbolti Sýður á Svisslendingum Fótbolti Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Fótbolti Metið kolféll í Laugavegshlaupinu Sport Fleiri fréttir Sjáðu Róbert Frosta tryggja GAIS dísætan sigur „Mikil saga og mikill sársauki“ Sýður á Svisslendingum Haaland eldri hraunar yfir dómarana Argentínsk goðsögn fallin frá FIFA: Örflagan sýnir enga snertingu við vírinn Maður dagsins á HM: Öldungar á rassinum og nærbuxur Kim Kardashian Sveindís og stöllur unnu toppliðið Hökta áfram og mæta Englandi í undanúrslitum Bellingham sendi sára Norðmenn heim Boltinn í vír og Norðmenn segja algjört hneyksli að markið skyldi standa „Ástæðan fyrir því að það er talað um að hún sýni ekki nóg“ Héldu flugi eftir sigurinn á Íslandi og drottna yfir EM U19 Hissa á útspili Haalands „Frakkar eiga að óttast okkur“ Óðinn óstöðvandi í stórsigri Messi ræður sjálfur hvort hann taki vítin Klopp samþykkir að taka við Þýskalandi Ken Bates látinn Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Tindastóll mætti ekki til leiks Súrrealískt að spila golf með Trump Með Haaland á toppi vinsældalistans Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Sér ekki eftir því að hafa valið Marokkó fram yfir Frakkland Segir að enska liðið verði að „losa um handbremsuna“ gegn Noregi Klopp um flugferðina þegar hann ætlaði að fá Mbappé til Liverpool Svíar setja ríginn til hliðar og segjast halda með Noregi Sjá meira