Lífið

Klemens mætti í hálfum jakka á appelsínugula dregilinn

Kolbeinn Tumi Daðason í Tel Aviv skrifar
Hatari á appelsínugula dreglinum.
Hatari á appelsínugula dreglinum.
Liðsmenn Hatara mættu á appelsínugula dregilinn í Tel Aviv um klukkan 17:15 að íslenskum tíma í dag en nokkur seinkun varð á athöfninni þar sem fulltrúar allra þjóðanna ræða við blaðamenn og bjóða upp á myndatökur með aðdáendum.

Einn kynnanna sagði að það væri líklega vissara fyrir börn og grænmetisætur að horfa undan því Hatari legði mikla áherslu á BDSM og leður í atriði sínu.

Í framhaldinu komu sexmenningarnir, söngvarar, dansarar og trommugimp, út úr bílunum og stilltu sér upp í myndatöku áður en aðalkynnar kvöldsins tóku þá tali.

Var greinilegt á kynnunum að þeir höfðu áhyggjur af því að Hataramenn yrðu seinir til svars eða myndu ekkert svar.

„Talið þið? Eða horfið þið bara?“ spurði karlkynnirinn.

„Við elskum að tala, við elskum að horfa og allt hitt líka,“ svaraði Matthías Tryggvi Haraldsson, annar söngvari sveitarinnar.

Barst talið í framhaldinu að klæðnaði þeirra og sagði Matthías sveitina sækja í fatahönnuði úr nærumhverfinu. Athygli vakti að Klemens Hannigan, hinn söngvari sveitarinnar, var klæddur í hálfan jakka.

„Augljóslega erum við ekki vanir hitanum svo ég reif hálfan jakkann af,“ sagði Klemens.

Kynnarnir virtust meðvitaðir um að pör væru að finna innan Hatara. Meðlimir væru bundnir fjölskylduböndum.

„Við erum frændur,“ sagði Matthías um þá Klemens en auk þess eru Einar Hrafn Stefánsson trommugimp og Sólbjört Sigurðardóttir kærustupar.

En hver eru skilaboð Hatara?

„Ef við stöndum ekki saman og finnum frið þá mun Hatrið sigra,“ sagði Klemens og skellti sér í frekari göngu eftir Rauða dreglinum.

Útsendingin frá Rauða dreglinum stendur enn yfir þótt farið sé að síga á seinni hlutann. Hana má sjá að neðan en hægt er að spóla til baka í spilaranum til að sjá Hatara.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.