Lífið

Styttist í stóru stundina í Tel Aviv: Þetta verða lengstu klukkustundir í lífi okkar

Kolbeinn Tumi Daðason í Tel Aviv skrifar
Lee Proud brá á leik með blaðamanni fyrir utan Dan Panorama hótel íslenska liðsins í morgun.
Lee Proud brá á leik með blaðamanni fyrir utan Dan Panorama hótel íslenska liðsins í morgun. Vísir/Kolbeinn Tumi
Lee Proud, danshöfundur íslenska atriðsins í Eurovision sem Hatari flytur, var í meira lagi í góðum gír þegar blaðamaður ræddi við hann rétt fyrir brottför af hóteli íslenska hópsins í Tel Aviv í dag.

Hann hefur góða tilfinningu fyrir deginum og kvöldinu.

„Miðað við hvernig gekk í gær þá er tilfinning mín sú að við erum algjörlega tilbúin. Allir eru á sömu blaðsíðu, náðu að sofa vel og hvíla sig. Þetta er í höndum kjósenda en við höfum gert okkar besta. Ég verð stoltur hvernig sem fer.“

Dómararennslið fór fram í keppnishöllinni í gær en atkvæði þeirra gilda til jafns við símakosninguna í kvöld. Þótti rennslið í gær takast nokkuð vel og segir Lee engar breytingar verða gerðar á atriðinu frá því sem var í gær.

Ástrós Guðjónsdóttir dansari er klár í slaginn eins og restin af Hataragenginu.Vísir/Kolbeinn Tumi
„Við leggjum bara áherslu á að halda bandinu afslöppuðu og einbeittu á verkefnið sem þau eru komin hingað til að gera.“

Þegar blaðamaður ræddi við Lee voru níu klukkustundir í að flautað yrði til leiks á fyrra undanúrslitakvöldinu, klukkan 19 að íslenskum tíma. Hann á von á að tímnin verði lengi að líða í dag.

„Þetta verða langar níu klukkustundir og okkur mun vafalítið finnast þetta lengstu níu klukkustundir í lífi okkar. Það er nóg að gera. Mæta í keppnishöllina, gera bandið tilbúið, svo er síðdegisæfing og stóra kvöldið.“

Spennan er mjög mikil að sögn danssérfræðingsins.

„Við erum öll mjög spennt og það eru miklar tilfinningar í spilinu. Það er svo mikil ást í liðinu og í öllum íslenska hópnum. Okkur í atriðinu líður einstaklega vel. Allir svo stoltir og ég held við höfum náð því sem við komum til að gera.“

Lee Proud í gimpgalla á göngu í Tel Aviv á dögunum. Um var að ræða upptöku á innslagi fyrir RÚV.RÚV
Lee viðurkennir að hann sé kominn með Eurovision-bakteríuna, „big time“ eins og hann kemst að orði. Hann hafi hlaðið niður lagalista með Eurovision lögunum í morgun.

„Ég hlustaði á hann í sturtunni,“ segir Lee sem er enskur en verið með annan fótinn í leikhúslífinu á Íslandi undanfarin misseri.

„Ég er fallinn fyrir pólska laginu. Ég veit ekki alveg hvað það er við lagið en eitthvað í því talar til mín. Ég hef enga hugmynd um hvers vegna því lagið er klikkað, en ég kann að meta það,“ segir Lee. Lagið sé þó ekki í öðru sæti hjá honum yfir lögin í Eurovision.

„Nei, Ísland er lagið mitt númer eitt upp í tíu en ef ég ætti að nefna eitthvað lag í viðbót væri það pólska lagið.“

Pólska lagið má heyra hér að neðan en það er fjórða á svið í kvöld.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.