Lífið

Hægt að panta Hatara kaffi í blaða­manna­höllinni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Svona lítur þessi gullbolli út.
Svona lítur þessi gullbolli út.
Ný styttist heldur betur í stóru stundina hér í Tel Aviv en Hatari fer á sviðið rétt fyrir átta í kvöld og er Ísland 13. atriði á fyrra undanúrslitakvöldi Eurovision.

Stemningin í blaðamannahöllinni er orðinn rosalega í Tel Aviv og gekk æfing Hatara algjörlega samkvæmt áætlun fyrr í dag.

Í blaðamannahöllinni er hægt að panta sér kaffi með mynd af Hatara í froðunni.

Heldur betur vel heppnað hjá fyrirtækinu My Heritage sem er í raun sambærilegt við Íslenska erfðagreiningu okkar Íslendinga.

Um er að ræða aðalstyrktaraðila keppninnar sem býður upp á ókeypis DNA próf. Blaðamaður hefur ekki gefið sér tíma til að gangast undir prófið enn sem komið er.

Fjölmargir blaðmenn mættir.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.