Fótbolti

CSKA upp í 4. sætið | Stórsigur Elmars í lokaumferðinni

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hörður Björgvin lék allan leikinn gegn Akhmat Grozny í dag.
Hörður Björgvin lék allan leikinn gegn Akhmat Grozny í dag. vísir/getty
Arnór Sigurðsson og Hörður Björgvin Magnússon voru báðir í byrjunarliði CSKA Moskvu sem vann 1-0 sigur á Akhmat Grozny í rússnesku úrvalsdeildinni í dag. Þetta var fyrsti sigur CSKA í fjórum leikjum.

Með stigunum þremur komst CSKA upp í 4. sæti deildarinnar. Liðið er aðeins tveimur stigum frá 3. sætinu sem gefur þátttökurétt í forkeppni Meistaradeildar Evrópu.

Hörður lék allan leikinn fyrir CSKA en Arnór var tekinn af velli á 78. mínútu.

Theodór Elmar Bjarnason lék allan leikinn fyrir Gaziantep sem rúllaði yfir Kardemir Karabuk, 1-6, í lokaumferð tyrknesku B-deildarinnar.

Gaziantep endaði í 5. sæti deildarinnar og fer í umspil um sæti í tyrknesku úrvalsdeildinni.

Kári Árnason lék ekki með Genclerbirligi sem laut í lægra haldi fyrir Adana Demirspor, 1-2.

Tapið kom ekki að sök því Ganclerbirligi sem var búið að tryggja sér sæti í úrvalsdeildinni. Deildarmeistaratitilinn gekk liðinu hins vegar úr greipum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×