Lífið

Svipur Hatara á útleið en óvíst hvað kemur í staðinn

Vésteinn Örn Pétursson skrifar
Hatari æfði á sviðinu og sat svo fyrir svörum í gær.
Hatari æfði á sviðinu og sat svo fyrir svörum í gær. Mynd/Eurovison
Svipurnar sem trommuleikari fjöllistahópsins og hljómsveitarinnar Hatara notaðist við á fyrstu æfingu sveitarinnar á stóra Eurovision-sviðinu í Tel Aviv eru á útleið, í það minnsta í bili. Þetta staðfesti Felix Bergsson, fararstjóri íslenska Eurovision-hópsins, í samtali við Vísi í dag.

Eins og Vísir hefur áður greint frá sakna ýmsir Eurovision-sérfræðingar sleggjunnar sem Einar Stefánsson, trommari sveitarinnar, hefur hingað til sveiflað til og frá í föstum takti við lagið „Hatrið mun sigra,“ sem er framlag Íslendinga til Eurovision í ár.

Svipurnar komu fram á sjónarsviðið á æfingu gærdagsins. Nú gætu þær verið á útleið.Eurovision
Þegar blaðamaður náði tali af Felix til þess að spyrjast fyrir um örlög sleggjunnar góðu sagði hann hana ekki vera með í för.

„Hún kom ekki með, það eru nýjar hugmyndir. Við náttúrulega breyttum sviðsmyndinni og þá var ákveðið að vera með þessar svipur í staðinn."

Hann segir fráhvarf sleggjunnar vera listræna ákvörðun Hatara og íslenska hópsins og tekur fyrir að stjórn Eurovision hafi haft nokkuð með sleggjuleysið. Hann segir þó líklegt að svipurnar fái að fjúka fyrir næstu æfingu sveitarinnar á stóra sviðinu, sem fram fer á fimmtudaginn.

„Ég held að ég geti fullyrt að svipurnar séu á leiðinni út og að þið munuð sjá eitthvað allt annað á æfingunni á fimmtudaginn,“ segir Felix sem vildi lítið gefa upp um hvað kæmi í staðinn. Vildi hann ekki staðfesta hvort örvæntingarfullir aðdáendur sleggjunnar mættu eiga von á að sjá hana á ný.


Tengdar fréttir

Hótanir gegn Eurovision

Sam­tök her­skárra íslam­ista úr röðum Palestínu­mann hefur í til­kynningu hótað Euro­vision-söngva­keppninni að sögn Jeru­salem Post.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.