Fjórtán dæmdir fyrir valdaránstilraun í Svartfjallalandi Atli Ísleifsson skrifar 9. maí 2019 11:32 Hluti sakborninga í haldi lögreglu í Svartfjallalandi í október 2016. AP
Dómstóll í Svartfjallalandi hefur dæmt fjórtán manns, þar af tvo þingmenn í stjórnarandstöðu, í fangelsi vegna tilraunar til valdaráns árið 2016. Mennirnir eru sakaðir um að hafa skipulagt valdarán með aðstoð Rússa. Stjórnarandstöðuþingmennirnir, Andrija Mandic og Milan Knezevic, voru báðir dæmdir í fimm ára fangelsi, en réttað var yfir tólf af hinum fjórtán í fjarveru þeirra. Flestir hinna dæmdu eru serbneskir ríkisborgarar, en Rússarnir Eduard Shishmakov og Vladimir Popov hlutu þyngstu dómana, annars vegar tólf ára fangelsi og hins vegar fimmtán. Saksóknarar sögðu mennina hafa ætlað sér að myrða þáverandi forsætisráðherra landsins, Milo Djukanovic, og koma í veg fyrir aðild landsins að NATO. Djukanovic er nú forseti landsins. Stjórnarandstaðan í Svartfjallalandi, sem vill auka samstarf við Rússlandsstjórn, hefur fordæmt réttarhöldin og líkt þeim við nornaveiðar með það að markmiði að skemma fyrir pólitískum andstæðingum stjórnarinnar. Réttarhöldin hafa staðið í um eitt og hálft ár og er mörgum spurningum enn ósvarað. Nokkur umræða hefur skapast um að þau vopn sem sakborningar voru sagðir hafa ætlað sér að nota voru ekki sýnd í réttarhöldunum. Þá breytti eitt af aðalvitnum saksóknara vitnisburði sínum í miðjum réttarhöldum.
Svartfjallaland Mest lesið Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Vildi meina að útbrotin væru eftir varafyllingar Innlent „Þetta er okkar gjöf til ríkisstjórnarinnar“ Innlent Valgerður fer aftur frá SÁÁ Innlent Ungmenni gripin við innbrot Innlent Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fleiri fréttir „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Sjá meira