Lífið

María Ólafs sest í sæti dómara í Eurovision

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
María Ólafsdóttir Eurovision söngkona.
María Ólafsdóttir Eurovision söngkona. Vísir/Vilhelm
María Ólafsdóttir, fulltrúi Íslands í Eurovision árið 2015 með lagið Lítil skref, verður í dómnefnd Íslands í Eurovision sem fram fer í Ísrael í ár. Tilkynnt hefur verið hverjir standa vaktina í dómnefndum þátttökuþjóðanna og má lesa nánar um dómnefndir annarra þjóða á heimasíðu Eurovision.

Auk Maríu eru Hrafnhildur Halldórsdóttir útvarpskona, Örlygur Smári lagahöfundur, Jóhann Hjörleifsson trommari og Lovísa Árnadóttir upplýsingafulltrúi. Þá hefur verið skipaður varadómari ef eitthvað kæmi upp á sem myndi valda því að ein hinna fimm getur ekki sinnt skildum sínum í Eurovision vikunni. Ekki er greint frá nafni varadómarans.

Vægi dómnefndar gildir til helmings á móti atkvæðum í símakosningu, bæði undanúrslitakvöldin tvö og svo úrslitakvöldið 18. maí.

Alls eru 205 dómarar frá 41 landi en meðalaldur dómaranna 205 er einmitt 41 ár. Yngsti dómarinn er sextán ára Malverji en sá elsti 82 ára Króati. Alls eru 96 konur í hlutverki dómara og 109 karlar.

Þau sem sitja í dómnefnd mega ekki hafa gegnt hlutverki dómara í keppninni árin tvö á undan. Þau þurfa að hafa náð sextán ára aldri daginn sem kosið er og mega ekki vera starfsmenn evrópsku sjónvarpsstöðvanna, RÚV í tilfelli Íslands. Þau þurfa að starfa við eitthvað tengt tónlist og sömuleiðis vera ríkisborgarar þeirra þjóða sem þau sitja í dómnefnd fyrir. Þá mega þau ekki tengjast neinu laganna eða listamönnum í keppninni á hátt sem gæti valdið því að þau væru ekki hlutlaus við störf sín í dómnefnd.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.