Snjókoma til fjalla varasöm sumardekkjunum Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. apríl 2019 07:53 Á Austurlandi má búast við kólnandi veðri í kvöld og snjókomu til fjalla. Vísir/vilhelm
Í dag, páskadag, má búast við fremur hægri breytilegri átt á landinu, að mestu skýjað en yfirleitt þurrt. Þó má búast við þokumóðu sums staðar sunnan- og vestantil fram eftir morgni, að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings. Þá verður hægt vaxandi norðaustanátt þegar líður á daginn, 5-13 m/s, og fer að rigna suðaustantil á landinu undir kvöld. Rigning eða slydda á Austurlandi seint í kvöld, en einnig norðaustanlands í nótt. Það kólnar í veðri og má búast við snjókomu til fjalla, en það er einkum varasamt fyrir þá sem hafa skipt yfir á sumardekk. Á morgun, annan í páskum, verður norðlægari vindur. Dálítil snjó- eða slydduél norðantil á landinu og hiti yfirleitt 0 til 3 stig. Mun betra veðurútlit er sunnanlands á morgun, en þar má víða búast við sólarglennum og getur hiti farið í 10 stig þar sem best lætur. Þegar líður á morgundaginn má þó búast við síðdegisskúrum á stöku stað.Veðurhorfur á landinu næstu daga:Á mánudag (annar í páskum):Norðaustlæg átt, 8-13 m/s og dálítil él norðantil, en hægari, skýjað með köflum og stöku skúrir syðra. Heldur vaxandi austanátt með rigningu syðst um kvöldið. Hiti yfirleitt 2 til 7 stig að deginum. Á þriðjudag:Austlæg átt, 8-15 m/s og slydda eða snjókoma norðantil og hiti nálægt frostmarki, en rigning í öðrum landshlutum og hiti 2 til 7 stig. Á miðvikudag:Fremur hæg suðaustlæg átt og úrkomulítið, en hvessir með rigningu í flestum landshlutum þegar líður á daginn. Hlýnandi veður. Á fimmtudag (sumardagurinn fyrsti) og föstudag:Ákveðin austanátt og víða rigning, en úrkomulítið fyrir norðan. Hiti 7 til 14 stig, hlýjast V-lands. Á laugardag:Útlit fyrir norðaustanátt. Víða dálítil væta, en úrkomulítið suðvestantil. Heldur kólnandi veður.
Veður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Sjá meira