Lífið

Villi Vill með stórleik í nýju myndbandi Krabba Mane

Sylvía Hall skrifar
Vilhjálmur ræðir hér við Herra Hnetusmjör.
Vilhjálmur ræðir hér við Herra Hnetusmjör. Skjáskot
Lögmaðurinn Vilhjálmur H. Vilhjálmsson er á meðal þeirra sem birtast í nýju myndbandi rapparans Krabba Mane. Lagið „Rútína“ kom út í dag og rappa rappararnir Birgir Hákon og Herra Hnetusmjör einnig í laginu.

Margrét Edda Gnarr bregður sér einnig í hlutverk lögmanns og leikarinn Magnús Jónsson leikur dómara í laginu en rappararnir koma fram sem glæpamenn í laginu. Úr réttarsalnum liggur leið þeirra á Litla-Hraun þar sem gengur á ýmsu.

Tónlistarmyndbandið kom út í dag og þegar þetta er skrifað nálgast það um þrjú þúsund áhorf en það má sjá hér að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.