Leystu verkefnið fagmannlega Kristinn Páll Teitsson skrifar 23. mars 2019 10:30 Viðar Örn fagnar marki sínu. vísir/getty
Fótbolti Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu vann fyrsta leik sinn í undankeppni EM 2-0 gegn Andorra ytra í gær. Með því lauk 432 daga bið A-landsliðsins eftir sigri í sextánda leiknum síðan Ísland vann Indónesíu í æfingarleik. Liðið slapp með því við að bæta 39 ára gamalt met þegar karlalandsliðið lék sautján leiki í röð án sigurs. Þetta var sjötta viðureign Íslands og Andorra og hefur Ísland unnið alla leikina. Um leið vann íslenska liðið fyrsta sigur sinn undir stjórn hins sænska Eriks Hamrén og vann fyrsta leikinn í undankeppni stórmóts fjórða skiptið í röð. Mikið hafði verið ritað og rætt um aðstæðurnar í Andorra fyrir leik. Leikurinn fór fram á gervigrasi og lýsti Hamrén á blaðamannafundi yfir áhyggjum af því að leikir á þessu stigi færu fram á gervigrasi. Fyrir vikið var talið óvíst hvort leikmenn Íslands sem hafa verið að glíma við meiðsli myndu byrja í gær en Hamrén tefldi fram sterku byrjunarliði. Arnór Sigurðsson var kominn inn í byrjunarliðið en annars var liðið líkt og það hefur verið undanfarin ár. Freyr Alexandersson, aðstoðarþjálfari íslenska landsliðsins, lýsti því yfir að Andorra myndi reyna að hægja á leiknum, pirra íslenska liðið og komast inn í hausinn á þeim frá fyrstu mínútu og mátti sjá það strax í upphafi. Allar aðgerðir Andorra tóku langan tíma og voru þeir sífellt að suða í dómaranum allan fyrri hálfleikinn. Ísland skapaði sér fín færi strax í byrjun og fékk Alfreð Finnbogason frábært færi í upphafi leiks en skaut yfir af stuttu færi. Ísland hélt áfram að sækja og komst yfir á 22. mínútu þegar Birkir Bjarnason skallaði í netið af stuttu færi eftir hornspyrnu þar sem Ragnar Sigurðsson fleytti boltanum á Birki. Við það var Ísland komið með markið sem þurfti til að róa taugarnar. Íslenska liðið stýrði leiknum áfram og komst Gylfi Þór Sigurðsson nálægt því að bæta við marki um miðbik seinni hálfleiksins en Josep Gomes, markvörður Andorra, varði frá Gylfa. Var staðan því 1-0 fyrir Ísland þegar liðin gengu til búningsklefanna í hálfleik. Ljóst var að Ísland var með mun betra lið og með forskotið en vantaði annað mark til að drepa baráttuandann hjá leikmönnum Andorra. Á meðan forskotið er aðeins eitt mark er möguleiki á jöfnunarmarki alltaf til staðar. Ísland hélt áfram að stýra leiknum í seinni hálfleik og virtist Andorra hafa lítinn áhuga á að ná jöfnunarmarki í upphafi síðari hálfleiks. Aron Einar og Alfreð sem hafa verið að glíma við meiðsli komu af velli um miðbik seinni hálfleiks enda Ísland að stýra leiknum frá A til Ö þó að hann hafi ekki verið mikið fyrir augað. Viðar Örn Kjartansson, sem kom seint til móts við landsliðshópinn eftir að Björn Bergmann Sigurðarson þurfti að draga sig út vegna meiðsla, kom inn fyrir Alfreð og var fljótur að stimpla sig inn. Þegar Birkir Már kom með fyrirgjöf inn á nærstöng var Viðar Örn mættur og skoraði með bylmingsskoti á nærstöng. Óverjandi fyrir Gomes í marki Andorra og Viðar fljótur að minna á sig með þriðja marki sínu fyrir A-landsliðið í tuttugasta landsleiknum sem gerði út um leikinn. Leikurinn fer ekki í sögubækurnar fyrir skemmtanagildi en íslenska liðið leysti verkefnið af mikilli fagmennsku. Þeir létu leikmenn Andorra ekki komast upp með að leysa leikinn upp og mark Birkis í upphafi reyndist gullsígildi. Nú tekur við annað verkefni á hinum endanum þegar Ísland mætir ríkjandi heimsmeisturum Frakklands. Það var skylda að taka stigin þrjú í Andorra en nú skiptir liðið um ham og þarf að verjast og berjast fyrir stigum eins og lífi sínu á mánudaginn gegn einu besta liði heims.
Birtist í Fréttablaðinu EM 2020 í fótbolta Mest lesið Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Íslenski boltinn „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Íslenski boltinn Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Enski boltinn Hitti nýjustu stjörnu íslenska körfuboltans í skólanum Körfubolti „Við verðum að líta í eigin barm“ Enski boltinn Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Enski boltinn Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Fótbolti Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Fótbolti Hákon Arnar meiddist Fótbolti Bruno settur á bekkinn Enski boltinn Fleiri fréttir Barcelona - Real Madrid | Stórleikur á Spáni Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Vafi um réttan markafjölda Ronaldo eftir umdeilt mark „Við munum reyna að vernda hann fyrir sjálfum sér“ Strákarnir hans Freys klífa upp töfluna Markahæsta umferð sögunnar De Zerbi kátur eftir leik: „Nú er þetta fullmótað lið“ Hjartnæm stund í Hamingjunni: Ingvar tók við Íslandsskildinum Gylfi valinn besti leikmaður ársins „Óvíst hvar Stefan Ljubicic mun spila“ „Engin krafa frá stjórn um að ná sæti í Evrópukeppni“ Sjá meira