Fótbolti

Digne ekki með gegn Íslandi

Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar
Digne í leik með Frökkum
Digne í leik með Frökkum vísir/getty
Frakkar verða án Lucas Digne í leiknum við Ísland í undankeppni EM 2020 á mánudagskvöld en hann dró sig úr franska landsliðshópnum í dag.

Everton-maðurinn fór haltrandi af æfingu í vikunni eftir að hafa meiðst á læri og hefur nú þurft að draga sig úr hópnum.

Digne var ekki í liðinu sem vann Moldóvu 4-1 í fyrsta leik Frakklands í undankeppninni á föstudagskvöld.

Varnarmaðurinn á 23 landsleiki fyrir Frakkland og var í hópnum sem fór alla leið í úrslitaleikinn á EM 2016.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×